Að duga eða drepast hjá kvennaliðinu
Á morgun, föstudag verður oddaleikur í undanúrslitum Íslandsmótsins þegar Keflavík tekur á móti Grindavík á Sunnubrautinni. Liðin hafa unnið sinn leikinn hvort, en það sem einkennt hefur leikina er öðru fremur lágt stigaskor og lítill hraði. Keflavík hefur ekki náð sínum besta leik en vonandi ná þær sér á strik á morgun. Sigurður Ingimundarson mun leiða liðið á morgun og til loka Íslandsmótsins, en það gæti í versta falli orðið aðeins 1 leikur, en í mesta lagi 6.
Á döfinmi er hörkuleikur og má búast við mikilli spennu, rétt eins og á að vera í oddaleikjum. Kesha Tardy var einkar erfið í síðasta leik, en auk hennar hafa þær Ólöf og Sólveig verið atkvæðamestar hjá Grindavík.
Hjá okkar stúlkum er árangurinn oft tengdur hugarfarinu, ef þær eru aggressívar og grimmar þá leika þær vel, en ef þær hægja of mikið á sér, fara hlutirnir stundum að ganga ver. Við vonumst eftir góðum stuðningi áhorfenda á morgun, enda mikið í húfi hjá stúlkunum.
ÁFRAM KEFLAVÍK!!!