Fréttir

Karfa: Karlar | 10. maí 2008

Að leikslokum mfl. karla

Eftir tvö mögur tímabil að okkar mati var auðveldur leikur að semja við okkar leikmenn fyrir komandi tímabil.  Allir okkar leikmenn endurnýjuðu samning sinn við liðið ásamt þjálfaranum Sigurði Ingimundarsson.  Einnig var samið við Einar Einarsson um að hann myndi verða aðstoðarþjálfari liðsins en Einar hefur þjálfað yngri flokka Keflavíkur með góðum árangri.  Leitin að erlendum leikmönnum fór af stað og tóku menn sér góðan tíma í það verkefni.  Þann 18. september var samið var við Bandaríkjamanninn BA Walker sem kom frá Virginia Commonwealth háskólanum. Einnig komu þeir Anthony Susnjara  frá  Ástralíu  og Colin O´Reilly írskur landsliðsmaður til Keflavíkur til reynslu.  Colin staldraði stutt við því ákveðið var semja við Tommy Johnson sem hafði sýnt áhuga á að spila fyrir Sigurð Ingimundarsson.  Tommy kom því til liðsins en hann hafði verið að mála hjá Brussel í Belgíu.  Á þessum tíma, undir lok sept.  var því leikmannahópur Keflavíkur fullskipaður og eins og alltaf í Keflavík, valinn maður í hverju rúmi.  Úr yngri flokka starfinu voru einnig sprækir strákar að banka á dyrnar og þeir Elvar, Axel og Sigfús voru í hópnum mest allan veturinn.

Í árlegri spá liðanna var Keflavíkurliðinu þó aðeins spáð 5. sætinu sem okkur þótti nú heldur dapurt.  Liðið fór þó varlega af stað og spilaði ekki með erlendu leimennina í Reykjanesmótinu en leyfði þess í stað ungu strákunum að spreyta sig.  Liðið tók svo einn æfingaleik við FSU svona rétt til að hita upp fyrir mót.  Erlendu leikmennirnir komu vel frá þeim leik, BA skoraði 22. stig, Susnjara 17. stig og Tommy 15. stig.

Mótið hófst svo þann 12. október á heimleik gegn Grindavík og voru gestirnir lagðir með 25.stigum og línurnar lagðar fyrir framhaldið.  Keflavík vann svo næstu 7. leiki og voru þeir Jonni og BA valdir í lið 1-8 umferðar mótsins ásamt Sigga þjálfara.

Áfram hélt sigurgangan og eftir sigur á Tindastól og  Skallagrím var liðið meðfullt hús eftir 10.umferðir. Einnig komst liðið áfram í bikarkeppni kkí og Lýsingar.  Strákarnir fengu ekki að spreyta sig á heimavelli í bikarnum í ár því í 8.liða úrslitum drógumst við gegn Snæfelli á Stykkishólmi.  Það má segja að liðið hafa fengið lengsta ferðalagið í hvert skipti því við mættum ÍBV og Tindastól á útivelli áður en kom að Snæfelli.   

Fyrsta tap vetrarins kom í Grindavík þar sem við lágum með  24. stigum. Keflavík sigraði svo Snæfell á heimavelli áður en liðin mættust í bikarnum uppá Stykkishólmi.  Sá leikur var æsispennandi þar sem síðasta skot Keflavíkur geigaði og heimamenn höfðu 2. stiga sigur.

Keflavík sigraði svo Fjölni, Þór, ÍR, Stjörnuna, Skallagrím það sem eftir lifði móts. Töpin voru aftur móti gegn Njarðvík á heimavelli og KR á útivelli. Óvæntasta tap vetrarins kom svo gegn Hamar í Hveragerði en Hamar var svo gott sem fallið þegar að þeim leik kom. 

Keflavík varð Deildarmeistari  með 36. stig, 2. stigum meira en KR.  Liðið fékk einnig á sig fæst stig allra liða í vetur,  eitthvað sem fáir tóku kannski eftir.  Þannig gátu strákarnir státað sig af því að vera besta varnarlið deildarinnar en oft hefur liðinu verið hampað af góðum sóknarleik í gegnum árin.

Keflavík mæti Þór frá Akureyri í 8. liða úrslitum og ekki voru allir spámenn öruggir á að Keflavík færi í gegnum þá hindrun.  Menn tóku þar inn í dæmið að gengi liðsins var ekki eins gott eftir áramót og fyrir.  Strákarnir tóku lítið mark á þessu og unnu Þór með 26. stiga mun í fyrsta leik liðanna. Næsti leikur fór  fram á Akureyri  og var í járnum allt fram undir lok leiks.  Gunnar Einarsson spilaði mjög góða vörn á Cedric  Isom besta  mann Þórsara og sem var orðinn þreyttur undir lok loks.  Ísafjarðartröllið átti svo stórleik og setti niður 20. stig og Keflavík komið í undanúrslit fyrst liða það árið.

Andstæðingar okkar í undanúrslitum voru ÍR-ingar sem höfðu frekar óvænt slegið út erkifjendur sína úr  Vesturbænum 2-1 eftir hörkurimmu.  Margir voru á því að þeir væru vaknaðir af værum blundi og myndu slá út deildarmeistarana og komast í úrslit.  Og ekki byrjaði það vel fyrir okkur því ÍR stal af okkur heimaleikjaréttinum í fyrsta leik í Keflavík eftir framlengdan leik. Ekki tókst okkur að kvitta fyrir það tap í Seljaskóla því ÍR sigraði leik númer 2. með 17. stigum.  Staðan því 2-0 og staða okkar annsi slæm.  Sagan sagði líka að ekkert lið hafi náð að jafna metin eftir að lenda 2-0 undir, hvað þá að komast áfram í úrslit. 

Nú voru góð ráð dýr og eitt af því sem mönnum datt í hug var að fá Kef City TV menn til að búa til hvattningarmyndband fyrir liðið.  Það var gert og virtist virka því hugarfarið var allt annað enda sigraði Keflavík leikinn með 23. stigum. Þarna voru áhorfendur einnig að mæta sem aldrei fyrr og áhorfendamet slegið í hverjum leik.  Strákarnir jöfnuðu svo metin með glæsilegum sigri í Seljaskóla, 79-97.  Stemmingin var ótrúlega lík frá árinu 2005 þegar Keflavíkurliðið slóg einmitt sama lið út í undanúrslitum. Það er svo skemmst frá því að segja að ÍR-ingar áttu aldrei möguleika í oddaleik liðanna sem fram fór í Keflavík 16. apríl. Gunnar Einarsson sýndi að hann er ekki bara varnarmaður góður því hann átti stórleik og skoraði 23. stig ásamt því halda Hreggviði áfram niðri. Stemmingin á þessum leik var rosaleg og komust færi áhorendur að en vildu í Toyotahöllinni þennan dag.

Í úrslitaeinvígunu var svo komið að Snæfell sem hafði unnið nágranna okkar Njarðvík og Grindvík nokkuð auðveldlega.  Leikir liðanna um veturinn höfðu allir verið æsispennandi og sigrast með litlum mun.  Það var einnig þannig með fyrsta leikinn sem fram fór í Keflavík en svona var honum lýst. „Keflvíkingar héldu í næstu sókn sem lauk með þriggja stiga skoti frá Magnúsi sem var við frostmark í dag og áttu gestirnir síðustu sókn þegar 13 sekúndur voru til leiksloka. Jón Ólafur Jónsson fékk þá boltann óvenjufrír miðað við mikilvægi og stöðu mála í leiknum. Af hverju hann valdi að taka þriggja stiga skot þegar gestunum nægði tvö stig til sigurs verður mönnum hulin ráðgáta en skotið vildi ekki í netið. Tommy Johnson náði frákastinu og Hólmarar brutu um leið. Þá var innan við sekúnda til leiksloka. Tommy hélt á línuna, setti niður fyrra skotið og brenndi viljandi af því síðara til að fá tímann í gang enda of lítill tími fyrir gestina til að ná skoti á körfu Keflavíkur. Lokatölur því 81-79 fyrir Keflavík og deilarmeistararnir komnir í 1-0 í einvíginu.

Næsti leikur fór fram á Stykkishólmi og okkar stuðningsmenn fjölmenntu á leikinn. Stemming var allan tíman okkar megin og lítill stuðningur frá heimamönnum í stúkunni. Grípum hér niður í umsögn um leikinn Mikil villuvandræði voru hjá okkar mönnum og þeir hvíldu stóran hluta af þriðja leikhluta, Jonni og Susnjara. Þeir komu inná aftur í byrjun 4. leikhluta en Jonni nældi sér strax í sína 5. villu. Susnjara skoraði sitt 10.stig og kom Keflavík, 68-77. Hann fékk svo ódýrustu villu leiksins og inná kom Ísafjarðartröllið Siggi sem hafði leyst sína stöðu vel í leiknum. BA kom forustunni 12 stig og enn einn leikmaðurinn fauk útaf þegar Gunnar fékk sína 5. villu. Þröstur  leysti því Gunna af hólmi og átti slæma sendingu og Snæfell minnkaði munninn niður í 7.stig og enn rúmar 6. mín. eftir af leiknum. BA var sterkur á þessu kafla kom okkur í 8. stiga forustu og Siggi Þorvalds. svarar með þrist og staðan 81-86. Allt að verða vitlaust í húsinu, þegar Maggi sem hafði haft hægt um sig setti niður mikilvægustu körfu leiksins og það þriggja stiga. Staðan því 81-89 og 1.30 eftir af leiknum. Justin setti niður 2. viti og tíminn naumur fyrir Snæfell sem brjóta á Magga sem skilar báðum vítunum niður. Mikil örvænting hjá heimamönnum svo brjóta bæði á BA og Tommy sem skila 4. stigum í hús. BA toppar svo góðan leik sinn með þristi nánast frá miðju um leið og leiktíminn er úti.

Sannalega vænleg staða og nokkuð óvænt. Aðeins bjartsýnustu menn hefðu þorað að spá okkur 2-0 forustu gegn Snæfelli.

Síðasti leikur vetrarins fór svo fram á sumardaginn fyrsta fyrir framan 1400-1500 áhorfendur. Þann dag vann liðið sinn 9. Íslandsmeistaratitil eftir öruggan sigur, 98-74. Stemmingin í leikslok verður okkur lengi í fersku minni og hafa fjölmiðlar sagt að stemmingin á þessum leik hafi verið sú besta á íþróttakappleik á Íslandi!! Tommy var stigahæstur í leiknum með 23. stig en hann átti frábæra leiki gegn Snæfelli. Maður úrslitanna var svo kosin Gunnar Einarsson sem átti hvern stórleikinn af fætur öðrum út alla keppnina.

Á lokahófinu var Jón Norðdal Hafsteinsson kosin besti leikmaður mfl. karla og var vel af þeim titli kominn. Frábæru tímabili lokið hjá Keflavík sem varð bæði deildar-og Íslandsmeistari og ef litið er til síðustu 6. ára hefur Keflavík orðið 4. sinnum Íslandsmeistari.  Stjórn, starfsmenn, leikmenn og þjálfarar þakka fyrir sig og vona að stuðningur áhorfenda verði jafn góður áfram. Áfram Keflavík.

Tekið saman af Smára