Aðalfundur KKDK 25. jan
Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður haldinn mánudaginn 25. janúar klukkan 20:00. Fundurinn fer fram í K-húsinu og eru allir áhugasamir velkomnir. Mönnum er velkomið að bjóða sig fram í stjórn, fylgjast með umræðum um rekstur félagsins og taka þátt í þeim, svo eitthvað sé nefnt.
Kveðja,
Stjórnin