Fréttir

Körfubolti | 9. febrúar 2004

Aðeins meira um bikarleikina

Heimasíðan var að horfa á upptöku af bikarústlitaleik Keflavíkur og Njarðvíkur. Það verður að segjast eins og er að Keflavíkurliðið lék ótrúlega vel allan leikinn. Baráttan í vörninni var svakaleg og stemmingin í liðiun til fyrirmyndar. Boltinn gekk milli manna eins og best verður á kosið. Stórkostlegur leikur þar sem allir leikmenn skildu sín hlutverk og spiluðu fyrir liðið, enginn eigingirni og engin leti í vörninni. Þegar liðið leikur svona þá spilar það einfaldlega flottan körfubolta og fáir standast þeim snúning. Evrópuleikirnir eru farnir að skila sér í góðu liði sem er ekki bara samansafn einstaklinga, heldur lið sem leikur saman með eitt markmið í huga. Frábært. Þjálfararnir og allir sem að liðinu koma eiga hrós skilið fyrir það.

Kvennaliðið vann einnig stóran sigur í gær, þótt ekki hafi leikurinn verið jafn áferðafallegur. En stúlkurnar sýndu "karakter" eins og stundum er sagt, og neituðu að gefast upp. Þær trúðu á sjálfa sig og vissu innst inni að allt er mögulegt, jafnvel þótt maður eigi "slæman dag". Frábært hjá þeim.

Sem sagt, frábær dagur fyrir Keflvíkinga, þeir mega vera stoltir af sínum liðum.