Aðsent: Leikur 3: "Sweep" eða ekki "sweep"
Eftirfarandi bréf barst heimasíðunni seint á fimmtudagskvöld, en vegna tæknimistaka tókst ekki að birt bréfið í tæka tíð. En vegna þess að það er skemmtilegt látum við það flakka, þó seint sé . . .
Jæja kæru Keflvíkingar, farið inní kompuna ykkar og dustið rykið af strákústunum ykkar því það er komið að því, leikur númer 3 er í aðsigi og staðan 2-0 fyrir okkur:)
Hraðlestinn er kominn á siglingu með Magga, Fal, Gunna, og gamla refinn Gauja Skúla í fararbroddi sem hitta sem aldrei fyrr, ekki má gleyma bræðrunum Daimon og Herra Loftleiðum (Ed) sem eru að spila körfubolta í hæsta gæðaflokki. Er nokkuð hægt að biðja um meir??
En auðvitað er ekki sjálfsagður hlutur að við vinnum Njarðvík á föstudaginn, það verður að berjast fyrir því, inná vellinum og líka uppí stúku. Það hefur skapast góð stemming á síðustu tveimur leikjum, EN eins og allir vita má alltaf betur bæta hlutina.
Við í stuðningsveitinni viljum skora á, nei það er orðin frekar gömul þula sem er orðin frekar þreytt, við viljum frekar biðja okkur að gera okkur greiða:)
MÆTUM ÖLL, gamlir, ungir, litlir, stórir, feitir og mjóir og hvetjum OKKAR lið til sigurs í Sláturhúsinu að Sunnubraut.
Okkar EINA ósk er að við "Sweepum" nágranna okkar út úr keppninni og sendum þá í gott sumarfrí, en til þess að það takist þurfa strákarnir okkar GÓÐAN stuðning og mikil læti frá okkur.......................
Fyrir hönd "litlu trommustrákana" úr Keflavík
Bergsveinn Alfons