Fréttir

Körfubolti | 9. febrúar 2004

Æsifréttir hjá DV, faglegt hjá Stöð 2 og allt mögulegt á spjallsíðum

Það olli miklum vonbrigðum að lesa frétt á forsíðu DV í morgun. Þar var greint frá árásinni á Fannar og í sjálfu sér greint nokkuð nákvæmlega frá hlutum skv. okkar vitneskju. Hins vegar stóðst blaðamaður ekki mátið og gerði því skóna að árásin væri nýtt hámark af áralöngum ríg milli Keflavíkur og Njarðvíkur. Á forsíðu var látið að því liggja að Keflvíkingar myndu nú safna liði og taka réttvísina í eigin hendur.

Hvers konar blaðamennska er þetta eiginlega? Er blaðið að reyna að æsa Keflvíkinga upp til þess að frekari ofbeldisfréttir fylgi í kjölfarið? Fleiri forsíðufregnir? Spyr sá sem ekki veit.

Rétt er að komi hér fram að blaðamaður DV ræddi m.a. við Fannar og forsvarsmann Keflavíkur, Hrannar Hólm, áður en fréttin var skrifuð. Hrannar sagði blaðamanni að þetta atvik hefði ekkert að gera með Keflavík og Njarðvík, það hefði enginn æsingur verið í Stapanum og engin illindi í gangi, bara venjulegur fagnaður í kjölfar Bikartitla. Þetta hefði verið einangrað atvik. Blaðamaður hlustaði á þessa frásögn og fullvissaði Hrannar í kjölfarið um að greinin sem myndi birtast yrði ekki skrifuð á þeim nótum. Annað kom á daginn. Loforð þykja greinilega ekki merkileg hjá DV. Sorglegt.

Annað var uppi á teningnum hjá Stöð 2. Fannar lýsti sig reiðubúinn að veita viðtal í Stöð 2 ef fréttin yrði ekki í æsifréttastíl og að ekki yrði gert út á Keflavík-Njarðvík ríginn. Stöð 2 hét því að svo yrði ekki og stóð algerlega við sitt. Gaf okkur einnig tækifæri á að ítreka þessa staðreynd. Þessi fréttamennska er ábyrg og heiðarleg, rétt er greint frá því sem er fréttnæmt án þess að reynt sé að ýta undir óábyrgt og hættulegt slúður, frekar reynt að draga úr því. Fagleg og ábyrg vinnubrögð á ferðinni þar.

Vefstjóri ákvað að loka ekki fyrir spjallið þótt hann hafi þurft að eyða all nokkrum skeytum upp á síðkastið. Flestir spjallverjar hafa nægan þroska til að láta sér nægja að fordæma verknaðinn og óska Fannari góðs bata. Árnaðaróskir koma úr öllum áttum. Slík skeyti sýna samhug meðal körfuboltafólks og stuðningsmanna allra félaga og gera bara gott. Reynt verður að halda spjallinu opnu áfram, en Heimasíðan vill þó skora á netverja að gæta hófs í orðavali sínu, ekki síst þegar um viðkvæmt mál sem þetta er að ræða.

Nú skulum við vona að umfjöllun um þetta hörmulega mál fari að róast svo körfuboltaunnendur geti farið að einbeita sér að körfuboltanum að nýju, enda mikið fjör framundan. Heimasíðan mun þó vissulega færa fréttir af Fannari og vonumst við eftir að sjá hann í búningnum bláa áður en yfir lýkur.