Fréttir

Körfubolti | 5. maí 2003

Af ársþingi KKÍ í Stykkishólmi

Þrír fulltrúar Keflavíkur, þeir Hrannar Hólm, Birgir Már Bragason og Tryggvi Bragason, héldu vestur á Stykkishólm um helgina og tóku þátt í árlegu ársþingi KKÍ. Vel var tekið á móti okkur á Hólminum og þökkum við fyrir frábæra helgi, ekki síst heimsóknina að Bjarnarhöfn, þar sem Hildibrandur Bjarnason leiddi okkur í allan sannleik (?) um bændakirkjuna, Rembrandt-málverkið, höklana og kaleikinn!! Kíkjum aðeins á helstu málefni þingsins:

Körfuboltaumræðan var málefnaleg og fram komu ýmsar skoðanir. Við Keflvíkingar höfum lengi talað fyrir því að fækka eigi í efstu deildinni og í þeim málum eru Njarðvíkingar, Grindjánar og KR-ingar á sömu skoðun. En meirihlutinn telur hins vegar að nauðsynlegt sé að halda úti 12 liða deild, ekki síst til að tryggja vöxt og viðgang körfunnar á landsbyggðinni. Það sjónarmið er vel skiljanlegt og því varð raunin sú að fjöldi liða og keppnisfyrirkomulagið verða óbreytt.

Haukarnir vildu fjölga liðum í efstu deild kvenna, en því vorum við mótfallnir sem og flestir aðrir. Aðeins örfá ár eru síðan vart var hægt að manna sex liða deild og teljum við rétt að hún nái að festa sig betur í sessi áður en fjölgað er. Tillagan var felld og fyrirkomulagið í kvennaboltanum verður óbreytt.

Stóra málið á þinginu var ný reglugerð um þátttöku félagsliða í úrvalsdeild. Þar eru sett fram ýmis skilyrði fyrir þátttöku, t.d. skal leggja fram fjárhagsáætlun fyrir keppnisliðið og skila inn tveimur uppgjörum á ári, skila inn öllum leikmannasamningum, gefa út leikskrá, kynna til leiks lukkudýr, halda út virkri heimasíðu o.fl. o.fl. Margt af þessu hefur víða verið gert en nú er búið að gera ákveðna umgjörð að skilyrði fyrir þátttöku.

Reglum um útlendinga í úrvalsdeild var gerbreytt, eða öllu heldur var þeim eytt, því engar sérstakar reglur eru nú um fjölda útlendinga, félögin mega tjalda eins mörgum útlendingum og þau vilja í úrvalsdeildinni. Hins vegar verða félögin að halda sér innan launaþaks sem verður um 500 þús. kr. á mánuði, þar sem ekki má flytja pening á milli mánaða. Laun þjálfara eru ekki inni í þessum 500 þús. krónum.

Ekki er reglum breytt varðandi tímasetningar, en það þýðir að eftir 5. janúar ár hvert má ekki bæta við erlendum leikmanni. Samt má, líkt og áður, skipta út leikmanni allan tímann, t.d. ef hann meiðist eða ef menn vilja skipta af öðrum ástæðum.

Þessar reglur bæta nýrri vídd í íslenskan körfubolta, ef svo má segja. Nú geta lið í auknum mæli horft til Bandaríkjanna eftir liðsstyrk í stað þess að ráða misgóða Bosmann menn. Ekki geta félög þó hlaðið stjörnum í lið sitt því “eðlileg” laun fyrir góðan Kana eru kannski um 2 þúsund dollarar. Tveir slíkir kosta því um 320 þúsund (miðað við gengi dollarans í dag) og við bætast hlunnindi sem talin eru til tekna, sbr. húsnæði, bifreið og fæði. Þegar þetta er til tekið er ekki rúm fyrir meira. Menn gætu hins vegar auðveldlega ráðið þrjá leikmenn á lægri launum (ef menn hafa efni á þessu) en eins og nýleg dæmi sanna geta góðir leikmenn stundum verið “ódýrir”.

Í byrjun umræðunnar um launaþak var mönnum tíðrætt um að félögin gætu farið á bak við launaþakið og því myndi það ekki þjóna tilgangi sínum. En körfuboltahreyfingin telur rétt að prófa þetta fyrirkomulag og munu refsingar fyrir brot á þessum reglum verða mjög strangar. Við fyrsta brot verður viðkomandi leikmanni sparkað úr deildinni og 4 stig dregin af liðinu, og við annað brot verður liðinu vikið úr keppni. Þess skal þó getið að reglugerðin var ekki orðin “100% skotheld” á þinginu og því fékk stjórn KKÍ umboð þingsins til að fullgera reglugerðina og hafa öll félög skuldbundið sig til að fara eftir þeirri niðurstöðu. Fróðlegt verður að sjá afleiðingar þessara reglna . . . bráðlega þurfa menn að setjast niður og reikna . . .