Fréttir

Körfubolti | 15. febrúar 2006

Af kærumálum

Áfrýjunardómstóll KKÍ hefur staðfest dóm dómstóls KKÍ í máli því sem Hamar/Selfoss höfðaði gegn Keflavík vegna ólöglegs leilkmanns í í leik liðanna í Iceland Express-deild karla í janúar sl. Dómstóllinn dæmdi Keflavík leikinn tapaðan, þar sem Guðjón Skúlason leikmaður Keflavíkur hafði ekki haft leikheimild í leiknum.

Keflavík áfrýjaði dómnum og taldi að Guðjón hefði ekki haft áhrif á úrslit leiksins þar sem hann kom ekki inná í leiknum og hefði því í raun ekki verið þátttakandi í leiknum.

Í dómnum segir ma.: Að mati dómsins telst leikmaður meðal þátttakenda í leik um leið og nafn hans hefur verið skráð á leikskýrslu burt séð frá því hvort hann fari inn á leikvöllinn eða ekki. Hann getur með nærveru sinn haft áhrif á leikinn en þennan skilning má m.a. draga af því að leikmaður sem er í leikbanni má ekki vera á varamannabekk meðan á leik stendur. Að þessu sögðu og með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann staðfestur.  af kki.is

Það verður að segja að þetta er vonbrigði fyrir okkur í Keflavík, því þó nokkur vinna hefur verið lögð í þetta mál að okkar hálfu. Það er alveg ljóst að þetta er ekki í anda lagana og verður að skoðast á næsta KKÍ þingi.  Kunnum við Hamar/Selfossi litlar þakkir fyrir.

Af öðru máli. Vlad Boeriu leikmaður Keflavíkur í Iceland Express-deildinni var einnig kærður til aganefndar vegna brottvísunar í lok leiks Keflavíkur og Hauka sl. sunnudag. Í skýrslu sinni taldi dómari að um of harðan dóm hefði verið að ræða og því dæmdi aganefnd leikmanninn ekki til refsingar að þessu sinni.