Fréttir

Körfubolti | 22. ágúst 2004

Af Kanamálum og öðrum málum

Rétt er að gera grein fyrir stöðu Kanamála hjá Keflavík, enda farið að styttast í upphaf leiktíðar. Staðan er sú að stefnt er á ráðningu tveggja leikmanna fyrir karlaliðið og einnar stúlku fyrir kvennaliðið. Mikið hefur verið pælt og skoðað en ekki hefur verið gengið frá samningum við leikmenn ennþá. Um leið og eitthvað er pottþétt í þessum málum verður greint frá því á heimasíðunni.

Bæði liðin fara í keppnisferðir í september, stúlkurnar fara til Kaupmannahafnar um 17-19 sept og strákarnir viku seinna. Kvennaliðið mun leika æfingaleiki og taka þátt í hraðmóti hjá SISU. Strákarnir munu keppa á meistaramóti félagsliða á Norðurlöndum sem haldið verður í Oslo. Stefnt er að því að erlendu leikmennirnir verði komnir til Keflavíkur amk viku fyrir brottför til að geta æft með liðinu.

Valsmótið verður um aðra helgi og er gert ráð fyrir því að Keflavík taki þar þátt skv. venju.