Af málefnum Damons Johnson
Frá stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur:
Eins og komið hefur fram í fréttum hefur Damon Johnson fengið tilboð um að leika fyrir félag í Grikklandi sem heitir Panellinios. Það félag hefur auk þess boðist til að greiða Keflavík fyrir að losa Damon undan samningi svo að hann geti farið strax til Grikklands. Málið er nú í skoðun hjá stjórn körfuknattleiksdeildarinnar og í raun er ekki meira um það að segja á þessari stundu. Ákvörðun um framtíð Damons hjá Keflavík verður væntanlega tekin á næstu dögum og mun heimasíðan segja frá henni um leið og málin skýrast.