Áfram Keflavík! segir formaður KKÍ . . .
Eftirfarandi pistill birtist á heimasíðu KKÍ fyrr í dag:
Áfram Keflavík !
Jæja, er nú formaðurinn endanlega genginn af göflunum? Er hann farinn að svíkja sitt gamla félag, eða er vinsældakönnun í gangi í Keflavík?
Nei, svo er ekki, þótt svona kynnu einhverjir að spyrja sem vilja líta neikvætt á málin. Hið rétta er hinsvegar sá boðskapur formannsins að í þeim Evrópuleikjum sem framundan eru hjá liði Keflavíkur nú í nóvember og desember, eigi íslenskir unnendur körfuknattleiks að snúa bökum saman og styðja við bakið á íslensku félagsliði sem tekur þátt í alþjóðlegri keppni.
Það er sárara en margir gera sér grein fyrir hversu erfitt er fyrir KKÍ að standa frammi fyrir því að geta ekki boðið upp á landsliðsverkefni þetta árið, vegna fyrirvaralítilla skipulagsbreytinga hjá FIBA í Evrópu - skipulagsbreytinga sem kipptu grundvelli undan undirbúningsverkefnum sumarsins, svo ekki sé minnst á leikina heima og heiman sem leika átti í nóvember og janúar. Vegna breytinganna verða leikirnir ekki fyrr en í september 2004 og 2005.
Það er því lán í óláni að lið Keflavíkur hefur á sama tíma sýnt það hugrekki að skrá sig til þátttöku í Evrópukeppni félagsliða. Ætti það að svala að einhverju leyti hungri íslenskra körfuknattleiksunnenda á alþjóðlegum leikjum þetta árið. Íslensk körfuknattleikshreyfing hefur sýnt það þegar erfiðleikar steðja að þá snúa menn bökum saman sem ein heild. Keflavík - liðið sem sumir virðast elska að hata - eru nú fulltrúar OKKAR, og þar með íslensks körfuknattleiks.
Ég hvet alla til þess að fjölmenna á heimaleiki Keflavíkurliðsins í keppninni og sýna í verki stuðning við þetta verkefni, samhliða því að njóta þess sem Evrópskur körfuknattleikur hefur upp á að bjóða í dag.
Því endurtek ég hér...Áfram Keflavík ! Gangi ykkur vel.
Ólafur Rafnsson,
formaður KKÍ.
Við þökkum Ólafi sýndan hlýhug og einnig stjórn og starfsmönnum KKÍ sem hefur veitt okkur Keflvíkingum dyggan stuðning í okkar Evrópubrölti.