Áfram útileikir í bikarnum.
Í dag var dregið í 8 liða úrslitum Lýsingarbikars karla og kvenna. Bæði liðin fengu útileiki, strákarnir mæta Snæfell og stelpurnar Val.
Strákarnir hafa ekki fengið heimaleik í bikar síðan 5. janúar 2006 eða rétt tæp 2. ár enda lítið fyrir að fara auðveldu leiðina í gegnum hlutina. Þeir hafa síðustu 2. ár farið til Egilstaðar, Selfoss, Hveragerðis, Vestmanneyja, Sauðarkróks og nú verður haldið á Hólminn.
Leikirnir fara fram 11.-13. janúar nk.
Konur:
Valur-Keflavík
Snæfell-Fjölnir
Grindavík-KR
Haukar-Hamar
Karlar:
Skallagrímur-ÍR
Snæfell-Keflavík
Fjölnir-Þór Þorlákshöfn
Njarðvík-KR