Fréttir

Körfubolti | 15. febrúar 2004

Aftur tap á útivelli í lélegasta leik vetrarins

"Þetta var alger hörmung" sagði Guðjón Skúlason, skömmu eftir stærsta tap vetrarins, 105-81, gegn sprækum Sauðkrækingum. "Allir voru lélegir, bæði í vörn og sókn" hélt Guðjón áfram, "við prófuðum allar varnaraðferðir og alla leikmenn, en ekkert gekk upp í dag, örugglega daprasti leikur liðsins í vetur".

Nick Bradford var skástur í hörmulegu liði Bikarmeistaranna, skoraði 23 stig og tók 10 fröst. Skotnýting okkar manna var skelfileg, en á móti hittu Tindastólsmenn vel úr sínum skotum, ekki síst utan 3ja stiga línunnar. Enda hægur vandi, þegar engin vörn er spiluð. Þeir settu niður 15 af 27 sem er 56% nýting, en við 3 af 15 sem er 20%.

Aðeins einni viku eftir glæsilegan og öruggan sigur í bikarúrslitum þar sem liðið fór á kostum dettur það niður á allra lægsta plan, enn eina ferðina. Það er eins og ferðalög leggist illa í mannskapinn, eins og að einbeitingin og krafturinn hverfi þegar haldið er úr bænum. Og eftir því sem lengra er haldið, þeim mun verri verður frammistaðan. Töp gegn Hamri, Snæfelli og nú Tindastóli eru dæmi um þetta.

Sem betur fer voru þó úrslit annarra leikja hagstæð, því keppinautar okkar um 3ja sætið töpuðu einnig, Njarðvík og KR. Nú verðum við með kjafti og klóm að verja 3ja sætið og hrista af okkur þessar undarlegu sveiflur. Menn verða að skilja að allir leikir eru mikilvægir, ekki bara Evrópuleikir og Bikarleikir. Þetta er bara spurning um hugarfar, ekkert annað, því hæfileikarnir og getan eru til staðar.

Hér má sjá tölur úr leiknum.