Fréttir

Körfubolti | 2. desember 2002

Ágætir sigrar um helgina í Intersportdeild og Bikarkeppni

Tveir mikilvægir leikir voru á dagskrá Keflavíkurpilta um helgina, fyrst kom topplið KR í heimsókn á föstudaginn og síðan var haldið í Borgarnes í kvöld í fyrstu umferð Bikarkeppni KKÍ og Doritos. Báðir leikirnir unnust og er liðið því við toppninn í deildinni og í 16 liða úrslitum Bikarsins.

KEF – KR

Leikurinn gegn KR var um margt svipaður síðustu leikjum sem Keflavík hefur leikið. Glæsileg tilþrif inn á milli, örugg forysta byggð upp, en slakur fjórði leikhluti. En eins og gegn Grindavík í Kjörísúrslitunum sýndi liðið styrk á síðustu mínútunum og vann 3ja stiga sigur, 94-91.

Tvennt bar hæst í KR-leiknum. Annars vegar glæsilegur 2. leikhluti þar sem skytturnar Guðjón og Falur smelltu niður fimm þristum og Keflavík lék á alls oddi og byggði upp þægilega forystu. Hins vegar skal nefna frábæran endasprett Sverris Þórs Sverrissonar, en hann öðrum fremur tryggði Keflavík sigurinn með miklum baráttuvilja og hugrekki. Sverrir stal boltanum alls sjö sinnum í leiknum, þar af 3svar í lok leiksins, hann veiddi dómarakast, setti niður þrist þegar engin þorði að gera neitt í sókninni og hirti mikilvæg sóknarfráköst. Án efa maður leiksins, Sverrir Þór.

Þar utan má nefna góða þriggja stiga körfu Magnúsar Gunnarssonar í lokin, ágæta frammistöðu Damons og einnig “solid” leik hjá Kevin Grandberg, en hann lék nær allan tímann í fjarveru Jóns Hafsteinssonar sem er meiddur.

Verst var þó að liðið gaf frá sér þægilegt forskot eins og oft áður upp á síðkastið. Þetta er galli á leik liðsins en sem betur fer hafa þó tveir síðustu leikir unnist á lokasekúndunum, þannig að ekki hefur komið að sök. Í kjölfarið á þessum sigri kemur upp skemmtileg staða á toppi deildarinar, þar sem Keflavík, KR, Grindavík og Njarðvík eru öll jöfn.

Sjá tölur úr leiknum.


SKA – KEF

Byrjunin var slök gegn Skallagrími og skyttur heimamanna voru í miklu stuði. Varnarleikur okkar manna var lélegur og Skallagrímur byggði upp 13 stiga forskot, 59-46. Keflavík náði þó að setja 6 síðustu stigin og hálfleikstölur voru 59-52.

Sigurður þjálfari var ósáttur og leikmenn hans tóku sig taki í hálfleiknum og mættu tvíefldir til leiks í þeim seinni. Damon fór fyrir sínum mönnum sem svo oft áður og eins stóð Sverrir Þór sig vel með sinni alkunnu baráttu. Hægt og bítandi náðu okkar menn öllum völdum á vellinum. Keflavík jafnaði í stöðunni 67-67 og byggði síðan upp forskot sem endaði í 17 stigum, 99-116.

Sjá tölur úr leiknum.

Með þessum sigri komst Keflavík í 16 liða úrslit Bikarsins, en næsta umferð verður leikinn fyrir jól, nánar tiltekið þann 18. des.