Fréttir

Körfubolti | 2. október 2005

AJ Moye skrifar undir hjá Keflavík

Keflavík hefur fengið til sín nýjan leikmann, AJ Moye að nafni. AJ eins og hann er kallaður kemur frá Indiana Hoosiers  í 1.deildinni, þar sem hann var með 10 stig og 6,4 fráköst í leik.

Sá kvóti sem settur var á í síðasta þingi kki, þar sem segir að aðeins sé heimilt að vera með einn leikmann frá USA í hverju liði, hefur ekkert með Evrópukeppnina að gera og það verður hans hlutverk að spila með liðinu á þeim vettvangi.

Ástæðan fyrir komu AJ til liðsins er sem sé að styrkja liðið fyrir komandi átök í Evrópukeppninni, enda eru þau lið sem við spilum við þar mjög sterk. Þetta verður þriðja skiptið í röð sem við tökum þátt í keppninni og sú reynsla sem leikmenn eru komnir með ætti að hjálpa okkur að ná lengra. Tvö síðustu ár hefur árangurinn verið mjög góður og er planið að gera en betur í ár.

Keppnin í ár var breytt frá síðustu árum þar á undan og heitir í ár EuropeCup Challenge og nú eru 3 lið í riðli og 2 af þeim fara áfram. Liðin í ár eru mun sterkari en við höfum spilað við til þessa. Finnsku meistararnir NMKY eru t.d. með frábært lið og 2 mjög góða kana, Matthew_Williams og Andre_Foreman.  Hitt liðið í riðlinum, Sumy frá Úkraínu vitum við ekki eins mikið um en það er talið mjög sterkt.

AJ kom til landsins nú í dag og mætir á fyrstu æfinguna á morgun.