Fréttir

Körfubolti | 9. febrúar 2005

Alex Stewart til Keflavíkur

Keflavík er komið með nýjan leikmann að nafni Alex Stewart. Alex útskrifaðist frá Georgia Tech háskólanum 2004, þar sem hún lek stöðu leikstjórnanda við mjög góðan orðstír. Hún þykir góður varnarmaður og mjög snögg. Hún er 24 ára og með leikjahæstu leikmanna Georgia Tech og var hæst í stoðsendingum á síðasta ári sínu í skólanum. Henni er ætlað að fylla skarð Reshea Bristol  sem fór frá liðinu í  janúar. Það er von okkar að hún falli vel að leik liðsins og við hjá heimasíðunni bjóðum hana velkomna til Keflavíkur. Alex mun að öllum líkindum leika sinn fyrsta leik með Keflavík í kvöld á móti Njarðvík.

 

Heimasiða Georgia Tech.