Algert einbeitingarleysi kostar sigur gegn ÍR
Enn virðist loða við Keflavíkurliðið sá leiðinlegi ósiður að mæta til leiks án þess að menn séu klárir í slaginn. Þriðji ósigurinn í Intersport deildinni leit dagsins ljós á föstudagskvöldið þegar liðið lék gegn sprækum ÍR-ingum í Seljaskóla. Keflavík lék vægast sagt illa frá upphafi til enda leiks og tapaði að lokum með þremur stigum, 84-81.
Skemmst er frá því að segja að skotnýtingin var skelfileg og t.d. hittu Falur og Magnús aðeins úr fjórum af tuttugu þriggja stiga skotum sem flest öll voru þó tekin í galopnum færum. En það sem verra var, einbeitingarleysið í sóknarleiknum var algert því boltanum var í gríð og erg kastað í fang andstæðinganna sem tóku gjöfunum fagnandi og skoruðu hverja körfuna á fætur annari án vandræða. Kaninn þeirra setti 40 stykki, ansi mörg eftir að hafa hirt boltann af okkar mönnum.
Kevin Grandberg var einna skástur okkar manna, sérstaklega í fyrri hálfleik, en hann gerði 16 stig og hirti 14 fráköst. ÍR leiddi mest allan leikinn, en í lokin tókst okkar mönnum að jafna en gerðu sig síðan seka um klaufaleg mistök og sendu m.a. ÍR-inga á vítalínuna þar sem þeir gátu í rólegheitunum gert út um leikinn. Damon átti reyndar síðasta skotið í leiknum út þröngu færi en hitti ekki.
Jonni og Guðjón léku ekki með í þetta skiptið og Gunnar Einarsson gat nánast ekkert beitt sér sökum bakeymsla. Engu að síður er liðið það vel mannað að það ætti ekki að koma að sök. En í þetta skiptið var andleysið ráðandi og liðið lék langt undir getu. Við skulum þó ekkert taka frá ÍR-ingum sem voru baráttuglaðir og uppskáru samkvæmt því.
Næst á dagskrá í deildinni er heimaleikur gegn Breiðablik og síðan koma Haukar í heimsókn í stórleik í Bikarkeppninni. Þá er mikilvægt að einbeitingin og áhuginn séu til staðar, ef halda á möguleikanum opnum á Bikarleik í Höllinni seinna í vetur.