Fréttir

Körfubolti | 26. október 2005

Allir komnir til Lappeenranta

Jæja komnir á leiðarenda loksins og klukkan orðinn 24.00. Manskapurinn var vaknaður um kl 4.45 og mætir í flugstöðina um 6 leitið. Reyndar voru Arnar og Maggi smá seinir enda var Arnar erfiður í gang, Gunni Jóhans. farastjóri kom svo seinastur en hann gleymdi bjútíboxinu og varð að snú við á brautinni. Menn skelltu sér í morgunverð að hætti flugleiða og fóru þaðan um borð í Iceland Express vélina. Þar var seinkun vegna þess að hátalarkerfið var ekki alveg að virka, enda komu ekkert nema skruðningar úr kerfinu. Seinkun upp á rúmar 30 mín. Þessi seinkun varð heldur betur örlagarík enda misstum við að tengifluginu til Helsinki og þá í leiðinni áfram til áfangastaðar, Lappeenranta. 

 Komum í gegnum tollinn og áttum heilar 35 min eftir í flug. Gunnni Jóhans. farastjóri rauk að innritunarborðinu og skellti miðunum fyrir allan hópinn á borðið. Næst sáum við Gunna eldrauðan í framan hlaupa að borðinu þar sem hægt er að breyta miðum.. Þar fékk hann þau skilaboð að ekki væri hægt að breyta miðunum og við yrðum að kaupa nýja. ''Sweet''.  Þá var enn sirka 15 mín. í vélina sem við áttum að fara með.  Svipurinn á farastjóranum var svakalegur og við urðum allir hræddir. Enda fann hann einhvern sem einhverju réð og sagði honum til syndana eins og honum einum er lagið. Sá var jafn hræddur og við og breytti miðunum svo við komust loks af stað til Helsinki.

Þar beið næsta vandamál... Hluti af hópnum átti bókað far kl 20.10 að staðartíma en restin af hópnum kl 23.40.  Það var því ljóst að ekkert yrði að æfingu eins og Siggi og Gauji Skúla. höfðu áætlað. Við náðu þó að koma leikmönnum með Sigga í farbroti til Lappeenranta í fyrra  flugi og við hinir sátum eftir. Þar var ekkert annað að gera enn að ná sér í eina steik enda allt í steik.

Strákarnir létu okku vita þar sem við biðum eftir flugi að þeir væru komnir á leiðarenda, með 12 töskur og því 9 töskur ekki með í för.  Töskurnar höfðu eitthvað ruglast enda kannski eðlilegt meðað við þær breytingar sem við urðum að gera á miðunum. Jæja loks um borð í Saab 340, en það er naffnið á vélinni sem flutti okkur til Lappenranta. Saab 340 er 30 sæta skrúfu vél og rímið kannksi ekki mjög mikið. Ég þurfti að sækja salernið heim og það var minnsta rími sem ég hef komið inn í. Frekar skrítið að vera að pissa inn í Saab á 400 km hraða og mér var hugsað til Zlatko, enda kappinn 203 á hæð.

Það var svona svipuð tilfinning að lenda í Lappenranta og að lenda á Sauðarkróki, sem sagt frekar lítill flugvöllur. Traktorinn var þó klár í slagin að lóðsa vélina í hlað. 7 töskur skiluðu sér og því taskan hans Adda og Dóra tíndar. Þegar við ætluðum að fá upplýsingar um málið komumst við að því að það voru allir farnir og sennilega áttum við að skella í lás þegar við fórum út. Vonandi skila töskurnar sér þó fljótlega en aðalmálið er að búningarnir eru komnir. Annas er allt gott að frétta og allir klárir fyrir morgundaginn. Dagurinn á morgun hefst með morgunverði og svo verður haldið á langþráða æfingu. Meira um það seinna.