Allt komið á fullt - Innritun í dag
Æfingar yngri flokka Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefjast formlega samkvæmt æfingatöflu í dag, mánudaginn 3. sept.
Æfingatöfluna er hægt að nálgast á heimasíðunni eða klikka hér. ATH. að fyrsta vikan verður notuð í að prufukeyra töfluna og síðan reynum við að slípa hana betur til ef á þarf að halda og sé það möguleiki yfir höfuð. Náið ykkur því í nýja töflu á heimasíðunni um næstu helgi ef það verða breytingar og taflan hefur fengið nýja útgáfudagsetningu.
Þjálfara deildarinnar má sjá hér.
Opið er fyrir rafræna skráningu á heimasíðunni. ATH. að allir iðkendur verða að vera skráðir. Þeir sem óska eftir að ganga frá greiðslu æfingagjalda með öðrum hætti en greiðslukorti/raðgreiðslum geta komið í Félagsheimilið á Sunnubraut 34, 2. hæð, í dag, 3. september milli kl. 17.00-20.00 og gengið frá skráningu yfir kaffibollaspjalli.
Það er Barna- og unglingaráði ánægja að tilkynna óbreytta upphæð æfingagjalda frá fyrra ári þó það sé nokkuð ljóst að þau hafa ekki fylgt eðlilegri verðlagsþróun í landinu. Systkinaafsláttur er líkt og áður að greitt er fullt gjald fyrir elsta barn en hálft fyrir yngri systkini. Ekki er veittur systkinaafsláttur milli annarra deilda félagsins.
ALLIR nýir iðkendur deildarinnar fá frían keppnisbúning (treyja og stuttbuxur).
ALLIR skráðir iðkendur í yngri flokkum félagsins fá frítt á leiki meistaraflokksliða félagsins.
ÁFRAM verður boðið upp á fríar&frábærar morgun-/aukaæfingar tvisar í viku fyrir 8. bekk og eldri og hefjast þær æfingar í byrjun oktober.