Fréttir

Almar framlengir við Keflavík
Karfa: Karlar | 3. júlí 2013

Almar framlengir við Keflavík

Almar Stefán Guðbrandsson, miðherji Keflavíkur, framlengdi samning sinn við félagið í gær. Almar lék rúmar 12 mínútur í leik á síðasta tímabili þar sem hann tók um 4 fráköst og skoraði 2.5 stig að meðaltali. Það er hins bæði trú stjórnar körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og leikmannsins sjálfs að mun meira búi í þessum stóra og stæðilega leikmanni. Bindur félagið þar að leiðandi miklar vonir við Almar á komandi tímabili. Eins og flestir vita er Almar uppalinn Keflvíkingur og má segja að kappinn "blæði bláu" eins og maðurinn sagði...

Mynd: Falur Harðarson, formaður KKDK, og Almar Guðbrandsson tókust í hendur eftir að blekpennarnir höfðu verið mundaðir.