Almar snýr aftur
Almar Guðbrandsson hefur ákveðið að snúa aftur í raðir Keflvíkinga, eftir stutt stopp hjá KFÍ og Grindavík. Almar er borinn og barnfæddur Keflvíkingur og spilaði með yngri flokkum Keflavíkur, ásamt því að spila í meistaraflokk áður en hann hélt Vestur. Almar verður góð viðbót fyrir hópinn í komandi átökum Iceland Express deildarinnar.