Alvöru flugeldasýning í Sláturhúsinu í gær þegar Bikarmeistarar Keflavíkur tryggðu sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins
Það tók Keflvíkinga um fimm mínútur að finna taktinn í oddaleik Keflavíkur og ÍR í átta liða úrslitum Íslandsmótsins í gær. ÍR byrjaði aðeins betur og leiddi 11-15. Þá komu þristar frá Guðjóni og Damon og Keflavík komst í 24-19 og svo virtist sem Keflavíkurdrengir fyndu blóðbragðið. Og þá hófst flugeldasýningin af alvöru.
Keflavík skoraði 26 (!) stig í röð og breytti stöðunni í 50-19. Sá kafli var stórkostlegur og fór Guðjón fyrirliði Skúlason fyrir sínum mönnum, en hann setti 17 stig á þessum kafla, þar af voru 5 þristar úr 6 tilraunum. Ed sýndi einnig fyrirtaks háloftafimleika og tróð þrisvar á stuttum tíma, flottasta troðslan kom beint úr innkasti, en Damon sendi hátt yfir hringinn þar sem Eddi kom svífandi og hamraði boltann niður. Ekki skal þætti Sverris Þórs gleymt en hann kom inn af bekknum með sinn alkunna fítonskraft og hleypti miklu stuði í varnarleikinn.
Og ekki voru menn hættir. Magnús Gunnarsson kom inná fyrir Guðjón og hélt 3ja stiga sýningunni áfram, smellti fjórum niður á stuttum tíma og þar af einum á lokasekúndu fyrri hálfleiksins. Með þeirri körfu höfðu Keflvíkingar tryggt sér 42ja stiga forystu í hálfleik, 70-28, og höfðu skorað alls 59 stig gegn 13 á um 15 mínútum!
Önnur eins sýning hefur ekki sést í “Sláturhúsinu” í háa herrans tíð sem bar nafn með rentu í gærkvöldi. Andstæðingarnir voru gersamlega slegnir út af laginu og þeim féll allur ketill í eld. Varnarleikur heimamanna orsakaði taugaveiklun hjá gestunum og leikmenn ÍR slógust í hóp með fjölmörgum stuðningsmönnum og gerðust áhorfendur að sýningunni. Þeir rönkuðu aðeins við sér í seinni hálfleik og löguðu stöðuna í fjórða leikhluta en þá voru úrslitin þegar löngu ráðin.
Í seinni hálfleik gerðist fátt markvert, enda aðeins skylduverkefni hjá Bikarmeisturum Keflavíkur. Liðið var frábært í fyrri hálfleik og þurfti ekki mikið að hafa fyrir hlutunum eftir það. Guðjón var baneitraður með 26 stig og liðsheildin var geysiöflug. Ed setti 20 og hirti 15 fráköst og Damon skoraði líka 20 og átti 10 stoðsendingar. Alls skoraði Keflavík 16 3j stiga körfur úr 31 tilraun sem er sérlega góð nýting, enda léku ÍR-ingar svæðisvörn mest allan tímann og gáfu skyttunum ágætis næði. Hjá ÍR voru Eiríkur og Eugene máttlitlir en Ómar hélt uppi baráttunni til loka leiks og skoraði 20 stig og hirti 14 fráköst.
Leikurinn var frábær fyrir keflvíska áhorfendur sem nú geta búið sig undir klassíska Reykjanesbæjarbaráttu þar sem grannarnir, vinirnir og uppáhalds andstæðingar okkar úr Njarðvík eru næstir á dagskrá. Meira um það síðar.