Andrija Ciric til Keflavíkur
Keflavík hefur náð samkomulagi við leikmann frá Serbíu, að nafni Andrija Ciric, um að spila með Keflavíkurliðinu í komandi átökum í Iceland Express deildinni.
Ciric þessi er fæddur árið 1980, 199cm á hæð og spilar bakvarðar-/framherjastöðu. Ciric hefur m.a. spilað í Kýpur, Ungverjalandi og Póllandi síðustu 3 ár.
Vonir standa til að hann fylli rækilega í skarð Lazar Trifunovic, sem hvarf á braut á dögunum. Næsti leikur Keflavíkur er á heimavelli gegn Fjölni á fimmtudaginn. Hvetjum alla til að láta sjá sig!
Áfram Keflavík!
Andrija Ciric