Fréttir

Körfubolti | 12. október 2004

Andstæðingar okkar í Bikarkeppni Evrópu að styrkjast

Þær fréttir berast frá Evrópu að andstæðingar okkar í Vesturdeild Bikarkeppni Evrópu verði sterkir í vetur. Kíkjum aðeins á nýjustu fréttir af félögunum.

Bakken Bears fá danska landsliðsmiðherjan, Chris Christofferson, til liðs við sig. Chris er 2,18m á hæð og ansi öflugur miðherji. Hann reyndist íslenska landsliðinu erfiður fyrr í haust og átti einnig skínandi leik þegar Danir lögðu Rúmena með einu stigi í Rúmeníu. Hann lék á sínum tíma með háskólanum í Oregon í Bandaríkjunum og komust þeir í 8 liða úrslit í háskólakeppninni. Þaðan lá leiðin til ítölsku A-deildarinnar, þar sem hann lék með stórliðinu Scavolini Pesaro. Ljóst er að Chris styrkir Bakken verulega. Bakken hafa byrjað vel í dönsku deildinni og hafa unnið tvo fyrstu leiki sína.

Vinir okkar í CAB Madeira hafa heldur betur umbylt liði sínu og er það nánast óþekkjanlegt frá síðustu leiktið. Þeir hafa á að skipa sterkari leikmönnum en óvíst er hvernig þeir ná saman. Deildin í Portúgal hefur ekki hafist enn, þó æfingaleikir, m.a. á Spáni gefi góð fyrirheit. Nýjasta stjarnan þeirra heitir Bobby Joe Hatton  sem er afburða leikstjórnandi, landsliðsmaður frá Puerto Rico. Eins hafa þeir fengið til sín þýskan Kana og eru enn á höttunum eftir einum Kana enn til að efla hópinn. Þeir hafa bætt serbneskum risa, Ivan Knezevic sem er 2,09m í hópinn.

Frakkarnir úr kampavínshéraðinu Reims byrjuðu vel í frönsku deildinni um daginn þegar þeir unnu útisigur á Vichy í fyrstu umferðinni. Þeirra sterkasti leikmaður er líklega Bandaríkjamaðurinn Ryan Fletcher. Sá er mikill köggull, 2,03m og 111 kg. Hann gerði 32 stig af 72 í þeirra fyrsta leik. Reims er alvöru klúbbur, ekki ósvipaður Dijon, sem sló okkur út í 8 liða úrslitum Vesturdeildarinnar í fyrra.

- - -

Annars er fyrirkomulag keppninnar með því móti að í Vesturdeildinni er einn riðill með fjórum liðum og í Miðdeildinni eru tveir fjögurra liða riðlar. Sem sagt alls 12 lið í þremur riðlum. Af þessum 12 liðum komast átta áfram úr riðlakeppninni, tvö efstu í hverjum riðli og síðan tvö bestu liðin af þeim þremur sem lenda í þriðja sæti. Þannig að efstu tvö sætin tryggja sæti í 8 liða úrslitum en 3ja sætið gæti einnig komið okkur áfram, þó fer það eftir árangri í samanburði við hin liðin í 3ja sæti.