Fréttir

Andy Johnston leystur undan samningi við Keflavík
Karfa: Konur | 8. apríl 2014

Andy Johnston leystur undan samningi við Keflavík

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur (KKDK) og Andy Johnston, þjálfari karla- og kvennaliðs félagsins, hafa komist að samkomulagi um Andy Johnston verði leystur undan samningi sínum við Keflavík. Samningurinn við Andy var til tveggja ára og voru miklar væntingar gerðar til beggja liða fyrir tímabilið. Segja má að gengið í deildinni hafi verið á pari við væntingar. Bæði lið duttu hins vegar út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar, 3-0, og var það árangur sem bæði stjórn KKDK og Andy sjálfur gátu illa sætt sig við. Í kjölfariði hafði Andy Johnston samband við stjórn KKDK með þá ósk að vera leystur undan samningi þar sem hann vildi leyta á önnur mið í Bandaríkjunum auk þess sem hann vildi þakka fyrir það tækifæri sem honum hafði verið veitt af Keflavík. Var það mat stjórnar að það væri heillavænglegasti kosturinn að segja samningnum upp.

Stjórn KKDK vill nota tækifærið og þakka Andy Johnston fyrir hans starf fyrir félagið og er honum óskað alls hins besta í því sem hann tekur sér fyrir í framtíðinni. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um það hvort Andy klári tímabilið með unglingaflokkum félagsins en hann var tilbúinn að klára þau verkefni sem eftir voru á tímabilinu.

Að lokum vill Stjórn KKDK koma því á framfæri að það sem fram kemur í svokölluðu "Ruslatali" á karfan.is á sér enga stoð í raunveruleikanum. Ekki verður skilið á hvaða vegferð Hörður Tulinius er með að bera slíkar gróusögur á torg. Erfitt er að sjá aðra ástæðu fyrir svona skrifum en að ala á slúðri og almennum leiðindum enda hafði umræddur aðili ekki einu sinni fyrir því fá staðfestingu á þessari "frétt" frá neinum hjá stjórn KKDK.

Stjórn KKDK