Fréttir

Andy Johnston þjálfar Keflavík næstu tvö árin
Karfa: Konur | 22. maí 2013

Andy Johnston þjálfar Keflavík næstu tvö árin

 

Keflavík hefur gengið frá samningi við Andy Johnston um að þjálfa karla- og kvennalið félagsins næstu tvö árin. Andy er 48 ára Bandaríkjamaður sem hefur mikla reynslu sem þjálfari en síðastliðin fimm ár hefur hann verið aðstoðarþjálfari hjá St. Francis College í NCAA í Bandaríkjunum. Tímabilið 2007-2008 þjálfaði hann lið PUHU í 1. deildinni í Finnlandi við góðan orðstír en vegna fjárhagsörðugleika hélt hann ekki áfram með liðið. Fram að tímabilinu í Finnlandi þjálfaði hann hjá hinum ýmsu háskólum í Bandaríkjunum.

Ásamt því að þjálfa meistaraflokka félagsins mun Andy aðstoða við þjálfun hjá yngri iðkendum félagsins og miðla reynslu sinni inn í unglingastarfið. Þá mun hann vera öðrum þjálfurum félagsins til halds og trausts. Keflvíkingar bjóða Andy velkominn til starfa og hlakka til að vinna með honum að markmiðum félagsins.