Anna María hefur leikið 476 leiki með Keflavík
Það var skemmtileg grein í Fréttablaðinu í morgun þar sem sagt var frá því að leikurinn í kvöld væri sá þrjúhundruðasti í röðinni af deildarleikjum hjá Önnu Maríu Sveinsdóttur. Gaman þegar fjölmiðlar fylgjast svona vel með. Sannarlega glæsilegur árangur hjá henni og við óskum henni til hamingju með þennan árangur.
Sú hefð hefur þó lengi verið viðhöfð hér í Keflavík að telja alla leiki sem leikmenn leika fyrir félagið og er þá átt við deild, bikar, úrslitakeppni og einnig "alvöru" æfingaleikir, sbr. æfingaferð stúlknanna til Danmerkur í vor og Reykjanesmót. Þegar allt er til talið hefur Anna María leikið alls 476 leiki með Keflavík og gæti því náð þeim merka áfanga á leiktíðinni að leika sinn 500. leik fyrir félagið. Það hefur vitanlega engin kona gert áður og aðeins fjórir karlmenn.