Fréttir

Körfubolti | 16. apríl 2004

Anna María og Gunnar best - Falur hættur

Í gærkvöld var endapunkturinn settur aftan við glæsilega leiktíð hjá meistaraflokkum Keflavíkur. Lokahófið var haldið í KK-salnum og var hið glæsilegasta. Um 120 gestir voru mættir og skemmtu sér vel, m.a. við Fear Factor atriði þeira Hermanns og Birgis stjórnarmanna, þar sem Halldóra bakaði þá Hrannar, Nick og Ægir í vatns-kókósbollu-bjór-pipar-jalapeno kappáti. Breiðbandið gerði stormandi lukku sem og annað sem á dagskránni var. Fjölmargir glæsilegir happdrættisvinningar voru á boðstólum og í lokin voru tveir meistaraboltar, karla og kvenna, boðnir upp og seldir. Töluvert var um viðurkenningar og gjafir - skoðum það helsta:

  • Besti leikmaður karla: Gunnar Einarsson - átti solid tímabil, var góður í öllum keppnum, traustur í vörn og sókn
  • Besti leikmaður kvenna: Anna María Sveinsdóttir - eitt hennar allra besta, leiðandi í öllum þáttum leiksins
  • Besti varnarmaður karla: Sverrir Þór Sverrisson - getur unnið leiki með varnarleik
  • Besti varnarmaður kvenna: Birna Valgarðsdóttir - gríðarlega fljót og grimm í vörninni
  • Mestu framfarir karla: Arnar Freyr Jónsson - náði því að verða að lykilleikmanni í meistaraliði
  • Mestu framfarir kvenna: María Ben Erlingsdóttir - kom afar sterk til leiks, aðeins 15 ára, og spilaði vel í topp liði

Einar Birkir Bjarkason var sæmdur nafnbótinni "starfsmaður ársins" fyrir óeigingjarnt starf við framkvæmd leikja, bæði hjá körlum og konum.

Leikmenn mfl. kvenna þökkuðu kvennaráðinu mikinn stuðning og veittu þeim gjafir, eins tóku leikmenn beggja meistaraflokka sig saman og gáfu Hrannari formanni forláta úr og þökkuðu honum störfin, en hann hyggst ekki gefa kost á sér til þess starfs áfram. "Mömmunum þremur", Kristínu í Kóda, Erlu Sveins. og Dísu, voru afhent blóm og þeim sérlega þökkuð mikil vinna vegna Evrópukeppninnar.

Þeir félagar Nick og Derrick voru leystir út með gjöfum, sérmerktum bolum með K-merkinu, nöfnum þeirra og áletruninni "Icelandic Champions 2004". Auk þess fengu þeir K- fána og smádót til að minnast veru sinnar hér.

Falur Jóhann Harðarson lýsti því yfir í gær að hann myndi nú leggja skóna á hilluna eftir 20 ára tímabil. Viljinn er sterkur hjá stráknum en hnéin eru veik og hann telur að rétt sé að hætta áður en hann fer að "hægja á sóknarleik liðsins" eins og hann orðaði það sjálfur. Falur notaði tækifærið og afhenti Gunnari Einars treyju nr. 4, en Gunni hefur lengi beðið eftir að fá að leika í þeirri treyju.

Evrópukeppnin var ofarlega í hugum leikmanna sem sýndu gestum stórskemmtilega myndir með góðum kommentum úr Evrópukeppninni,  en alls voru leiknir fjórir útileikir í þremur ferðum til Frakklands og Portúgals. Frábærar myndir sem sýndu enn og aftur hve magnað þetta Evrópuframtak var og við skulum vona að framhald verði á.

Víkurfréttir lögðu til myndir sem rúlluðu á veggnum um kvöldið og þökkum við fyrir það. Stjórnin hafði líka útbúið nokkurs konar "árbók" þar sem fram komu allar upplýsingar og öll statistik úr öllum keppnum vetrarins ásamt litmyndum ofl.

Stefnan er að birta sem fyrst myndir af hófinu.