Fréttir

Körfubolti | 5. mars 2003

Annað sætið í Intersport-deildinni er staðreynd – farið yfir stöðuna

Grindavík tryggði sér Deildarmeistaratitilinn með góðum sigri á Haukum í gærkvöldi. Við óskum Grindvíkingum til hamingju með titilinn, hann er verskuldaður eftir jafna og góða spilamennsku í vetur. Engu skiptir þótt Grindavík myndi tapa fyrir Hamri í síðustu umferð og Keflavík vinna Snæfell og Keflavík þannig ná Grindavík að stigum. Ástæðan er sú að Grindavík hafði betur í innbyrðis viðureignum félaganna í vetur. “Ef” KR, Grindavík og Keflavík “hefðu” hinsvegar verið öll jöfn að stigum, “hefði” Keflavík orðið efst vegna innbyrðis viðureigna félaganna þriggja. En “ef” og “hefði” skipta engu máli og nú er orðið ljóst að Grindavík verður númer 1 og Keflavík númer 2.

KR og Haukar mætast í síðustu umferðinni, og ef Haukar sigra með 3ja stiga mun, ná þeir 3ja sætinu af KR-ingum, annars endar KR í 3ja og Haukar í 4ða. Njarðvík er pottþétt í fimmta sætinu, en leikur ÍR og Tindastóls skiptir öllu um hvort liðið lendir í sjötta og hvort í sjöunda. Liðið sem tapar og lendir í sjöunda sætinu mætir Keflavík í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Keflavík fær Snæfell í heimsókn á fimmtudaginn, en sá leikur skiptir í raun ekki miklu máli fyrir Keflavík, en er þeim mun mikilvægari fyrir Snæfellinga. Því ef þeir tapa eiga þeir hugsanlega á hættu að missa sæti í úrslitakeppninni, því þessi þrjú félög gætu öll orðið jöfn að stigum ef Snæfell tapar, Hamar vinnur Grindavík og Breiðablik vinnur Njarðvík. Ef liðin verða öll jöfn lendir Breiðablik í 8. sæti, en til að Snæfell komist áfram verða þeir að vinna okkur eða þá að Hamar tapi gegn Grindavík. Ef Snæfell og Breiðablik verða jöfn er Breiðablik ofar.

Skallagrímur og Valur hafa þegar tryggt sér þátttökurétt í 1. deildinni að ári nema eitthvert félagið skorist undan þátttöku í úrvalsdeildinni líkt og Þórsarar gerðu s.l. haust. Skallagrímsmenn ætluðu sér að forðast fall úr úrvalsdeildinni annað árið í röð, en þrátt fyrir ágætan endasprett mistókst þeim að sigra Hamarsmenn um helgina og eru nú þess vafasama heiðurs aðnjótandi að hafa fallið tvisvar úr sömu deildinni á einu ári! Við sendum félögum okkar úr Val og Skallagrími samúðarkveðjur og vonumst eftir að sjá þá sem fyrst aftur í keppni meðal þeirra bestu.

Í síðustu umferðinni fara fram eftirfarandi viðureignir:

  • Keflavík (2) – Snæfell (8 eða 9 eða 10)
  • Hamar (8 eða 9 eða 10) – Grindavík (1)
  • Njarðvík (5) – Breiðablik (8 eða 9 eða 10)
  • Haukar (3 eða 4) – KR (3 eða 4)
  • Valur (11 eða 12) – Skallagrímur (11 eða 12)
  • ÍR (6 eða 7) – Tindastóll (6 eða 7)

Af ofangreindri umfjöllun má sjá að allir síðustu umferðinni skipta máli varðandi endanlega röð í deildinni. Meira að segja skiptir leikur Vals og Skallagríms máli, því hver veit nema að liðinu sem verður ofar af þeim tveimur verði boðið að leika í úrvalsdeildinni að ári . . . annað eins hefur jú gerst!