Annað tap Íslandsmeistara kvenna í röð, nú á heimavelli gegn ÍS
Í rúmt ár hefur kvennalið Keflavíkur unnið alla sína heimaleiki. En í gær varð breyting á þegar Stúdínur unnu 6 stiga sigur, 75-81. Heimasíðan var því miður ekki viðstödd leikinn, en fékk þennan greinarstúf að láni hjá stórvinum sínum hjá VF.is:
Keflavík tapaði á heimavelli fyrir liði ÍS í 1. deild kvenna í kvöld með 75 stigum gegn 81. Þetta var annað tap Keflavíkur í röð, en í síðustu umferð biðu þær lægri hlut gegn KR.
Skemmst er frá að segja að ÍS voru betri mestallan leikinn og samkvæmt Hirti Hjartarsyni þjálfara var þeim algerlega slátrað í fráköstunum í kvöld og ÍS sýndu af sér miklu meiri baráttuanda. „Það er greinilegt að vatnsgusan gegn KR var ekki nóg til þess að vekja liðið. Það er stundum eins og leikmenn haldi að þær séu áskrifendur að stigum bara vegna þess að þær eru taldar með besta mannskapinn.“ sagði Hjörtur og var hreint ekki ánægður með frammistöðu liðsins.
Erla Þorsteinsdóttir var komin aftur í liðið eftir meiðsli og skoraði 17 stig og Birna Valgarðsdóttir skoraði 15.
Hjá gestunum var Stella Rún Kristjánsdóttir atkvæðamest með 26 stig og Svandís Sigurðardóttir átti góðan leik undir körfunni og tók 10 fráköst.
Næsti leikur Keflavíkurstúlkna er gegn Njarðvík á miðvikudaginn. Vonandi er að "vélin" verði orðin smurð fyrir þann leik, þar sem engum blöðum um það er að fletta að ekkert lið hefur á að skipa jafngóðum leikmönnum og Keflavík.