Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 16. október 2005

Annar sigur hjá unglingaflokki karla

Unglingaflokkur karla spilaði við Hauka í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirðinum sl. föstudagskvöld.

Leikurinn var jafn og spennandi allt þar til strákarnir okkar sigu fram úr á lokamínútunum og sigruðu 92-82, en staðan í hálfleik var 40-34 Keflavík í vil.

Þröstur Leó Jóhannsson átti stórleik og skoraði 38 stig, Jón Gauti Jónsson 27, Adam Hart Fjeldsted 11, Páll Halldór Kristinsson 11, Aron Freyr Eyjólfsson 3 og Magni Ómarsson 2.