Fréttir

Körfubolti | 8. janúar 2003

Áræðni óskast! Keflavík tapar 77-80 gegn Njarðvík

Njarðvíkingar skutust upp fyrir okkur í Intersport-deildinni í gærkvöldi þegar þeir lönduðu 3ja stiga sigri í jöfnum leik. Okkar menn náðu sér aldrei á strik ef undan er skilinn smá sprettur í lok fyrri hálfleiks, þar sem Keflavík náði 13 stiga forskoti, 48-35, sem smá fjaraði út í seinni hálfleik. Njarðvík jafnaði þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir og innbyrti síðan 3ja stiga sigur. Keflavík hafði að vísu 10 sekúndur til að jafna leikinn en skot Arnars Freys var úr erfiðu færi og fór ekki í körfuna. Sigurinn var Njarðvíkinga.

Fyrri hálfleikurinn var jafn framan af og hittu Keflvíkingar ágætlega úr 3ja stiga skotum til að byrja með, en í stöðunni 34-32 náði Keflavík að setja kraft í vörnina þegar Arnar Freyr kom inná. Hann var ásamt Sverri og Magnúsi í fararbroddi í pressuvörn (sem reyndar var heldur sparlega beitt í leiknum) og Keflavík skoraði 14 stig gegn 2 og útlitið var bjart í hálfleik.

En strax í byrjun seinni hálfleiks var eins og einhver deyfð og andleysi væri yfir Keflavíkurpiltum sem skoruðu ekki stig fyrstu fjórar mínúturnar, eða allt þar til Grandberg náði tvívegis að blaka niður sóknarfrákasti.  Njarðvíkingar voru baráttuglaðari og þeir söxuðu á forskotið sem þó var enn sex stig þegar síðasti leikhluti hófst.

Fjórði leikhlutinn hefur ekki verið sérlega sterkur hjá okkar mönnum í deildinni í vetur og ekki breyttist það í gær. Það er engu líkara en að menn fari á taugum, setji í hægaganginn og hætti að gera það sem Keflavík kann best, sem er að spila grimma vörn og keyra upp hraðann. Sóknarleikurinn var afar hægur og óskipulagður síðustu mínúturnar enda fengust fá góð færi. Njarðvíkingum óx ásmegin og þeir Hunter og Teitur voru drjúgir við stigaskorunina. Auk þeirra var Friðrik Stefánsson góður, en hann var eins og kóngur í ríki sínu undir körfunni og virtust Keflvíkingar hræddir við hann.

Magnús átti ágætan leik í gær, en flestir léku langt undir getu, ekki síst Damon og Grandberg sem voru slakir. Helst áhyggjuefnið er þó sú staðreynd að einhverra hluta vegna hverfur hraðinn og áræðnin úr leiknum og á slíkum stundum leikur Keflavík lélegan körfubolta, svo einfalt er það. Sem dæmi má nefna að nánast aldrei var keyrt af krafti upp að körfu andstæðinganna allan seinni hálfleikinn.

Keflavíkurliðið olli fjölmörgum stuðningsmönnum sínum vonbrigðum í gærkvöldi, en vonandi virkar þessi leikur sem spark í rassinn. Þetta var jú bara einn leikur og eftir tvo daga fær liðið nýtt tækifæri til að sanna sig þegar Njarðvík kemur aftur í heimsókn í Bikarnum. Menn þurfa að vekja upp baráttuhundinn í sjálfum sér og mæta grimmir á föstudaginn, því sá leikur skiptir öllu máli!