Arnar Freyr á batavegi
Arnar Freyr fór í sneiðmyndatöku í morgun og í ljós kom að toppstykkið er í lagi. Engin brot og engar blæðingar. Hann þarf hins vegar að fara í röntgenmyndatöku til að athuga hvort hryggurinn hafi skaddast við höggið. Eins og staðan er í dag þá lítur út fyrir að Arnar Freyr hafi fengið heilahristing og slæma tognun í baki. Hann getur hreyft sig, en ekki mikið meira en svo. Honum ber að taka hlutunum með ró næstu daga og þarf að taka sér a.m.k. einnar viku algera hvíld. Síðan getur hann vonandi farið af stað aftur, hægt og rólega, ef bakið er í lagi.