Arnar Freyr fékk heilahristing og Jonni sneri sig á ökkla
Undir lok fyrri hálfleiks varð Arnar Freyr fyrir Clifton Cook þegar sá síðarnefndi keyrði inn í vörnina. Arnar féll aftur fyrir sig og lenti með hálsinn á hné félaga síns Nicks Bradfords. Arnar lág á gólfinu hálf vankaður í smá stund en stóð fljótt upp og gekk að bekknum. Er þangað kom spurði hann Fal þjálfara hvort hann hefði verið lengi inná! Falur sá að eitthvað var í ólagi og Arnar nánast missti meðvitund. Hann lagðist á góflið og stumrað var yfir honum. Fljótlega kom í ljós að hann hafði fengið slæmt högg á höfuðið því hann vissi nánast ekkert hvar hann var staddur eða hvað var í gangi.
Hringt var á sjúkrabíl og fagmennirnir komu Arnari Fyrir á sjúkrabörum og óku með hann á sjúkrahúsið. Þaðan var honum ekið á Landsspítalann þar sem hann var skoðaður. Eftir frumskoðun var það mat lækna að hann hefði fengið heilahristing og að hann hefði auk þess tognað í baki. Ekki var þó skoðun lokið og á Arnar að mæta í myndatöku á morgun. Arnar sagði að hann væri aumur í bakinu og að honum væri auk þess illt í hausnum og hálsinum. Á þessari stundu er ekki vitað meira, en líklegt má telja að ekkert hafi brotnað eða skaddast illa, þó ekki sé hægt að segja neitt með vissu fyrr en að skoðun lokinni á morgun.
Jonni sneri sig illa í byrjun seinni hálfleiks. Falur Daðason, sjúkraþjálfari, gerði að honum og hjálpaði honum útaf. Jonni fór síðan í myndatöku og þar var úr því skorið að ekkert hefði brotnað. Hins vegar er hann illa tognaður og líkleg hafa liðbönd í ökkla trosnað eða slitnað. Ekki er vitað hve lengi Jonni verður á meiðslalistanum, en líklega er það spurning um 5-10 daga.
Við sendum piltunum bestu kveðjur og vonumst eftir að sjá þá á vellinum sem fyrst aftur.