Fréttir

Körfubolti | 7. apríl 2004

Arnar Freyr og Dickerson dæmdir í eins leiks bann

Aganefnd KKÍ dæmdi í dag þá Corey Dickerson Snæfelli og Arnar Frey Jónsson Keflavík í eins leiks bann. Corey vegna brottvísunar í öðrum leik Keflavíkur og Snæfells sl. laugardag og Arnar Frey vegna atvika sem áttu sér stað í sama leik. Þeir munu taka bannið út í leik Keflavíkur og Snæfells nk. laugadag.

Ljóst má vera að sitt sýnist hverjum um niðurstöðu aganefndar, en hún hefur kveðið upp sinn úrskurð sem er endanlegur og í raun ekkert meira um málið að segja.