Arnar Freyr til liðs við Keflvíkinga
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Arnar Freyr Jónsson um að leika með Keflavík næstu tvö árin. Samningur
þess efnis var undirritaður í kvöld, en Arnar hefur leikið með Grindvíkingum síðustu tvö tímabil. Arnar er ekki ókunnur
aðstæðum í Keflavík, en hann er uppalinn Keflvíkingur og spilaði með meistaraflokk karla á árunum 2000-2008.
Á því tímabili varð hann 4 sinnum Íslandsmeistari og 2svar sinnum bikarmeistari. Ljóst er að Arnar mun verða mikill
styrkur fyrir Keflavíkurliðið á næstu leiktíð, en útlit er fyrir að liðið haldist óbreytt frá liðinni leiktíð, fyrir utan
Sverrir Þór Sverrisson, sem eins og kunnugt er hefur ákveðið að hefja þjálfun hjá kvennaliði Njarðvíkur.
Jón Norðdal Hafsteinsson framlengdi sínum samning um 2 ár í kvöld. Jón hefur leikið með Keflvíkingum frá blautu
barnsbeini, en hann hóf að spila með meistaraflokki Keflavíkur árið 1997.
Stjórn KKDK óskar þessum leikmönnum velfarnaðar með Keflavíkurliðinu næstu 2 árin.
Áfram Keflavík!
Frá undirritun samninga í kvöld. Frá vinstri: Guðjón Skúlason (þjálfari), Jón Norðdal Hafsteinsson,
Arnar Freyr Jónsson og Margeir Elentínusson (Formaður KKDK).