Árskort á heimaleiki Keflavíkur komin
Sérstakt tilboð er á árskortum Keflavíkur - "Vildarvinakortunum" - næstu þrjár vikurnar. Kortin fara á 7500 kr. stk en þau gilda á alla heimaleiki mfl karla og kvenna í Domino´s deildunum í vetur.
Verð á leiki í vetur verður 1500 kr. og því er fólk að fá aðgang að 22 leikjum á verði 5 með því að fjárfesta í slíku korti. Auk þess er um mikilvægan styrk til Körfuknattleiksdeildarinnar að ræða og því sannarlega kærkomið að fólk verði sér út um árskort.
Gerið ykkur ferð til leikmanna mfl kk, kvk, 1. flokks eða til stjórnarmeðlima til að verða ykkur út um kort því þau hækka upp í 10.000 kr. frá og með 15. okt.