Fréttir

Árskortin í TM-Höllina komin í sölu - Gilda í efri stúku á alla heimaleiki Domino´s deildanna
Karfa: Konur | 20. september 2013

Árskortin í TM-Höllina komin í sölu - Gilda í efri stúku á alla heimaleiki Domino´s deildanna

Árskortin í efri stúku TM-Hallarinnar fyrir leiki vetrarins í Domino´s deild karla og kvenna eru komin í sölu. Sérstakt tilboð er á kortunum núna en þau kosta 7500 kr. fram að fyrsta leik í Domino´s deild og því mikilvægt að tryggja sér kortin strax en eftir það hækkar verðið í 10.000 kr.

Líkt og undanfarin ár gilda árskortin á alla heimaleiki mfl karla og kvenna í Domino´s deildunum í vetur. Verð á leiki í vetur verður 1500 kr. og því er fólk að fá aðgang að 24 leikjum á verði 5 með því að fjárfesta í slíku korti, eða um 300 kr. á leik!!!. Auk þess er um mikilvægan styrk til Körfuknattleiksdeildarinnar að ræða og því sannarlega kærkomið að fólk verði sér út um árskort.

Hægt er að hafa samband við Sævar Sævarsson í síma 869-1926 (e-mail: saevar@keflavik.is) eða hreinlega gera sér ferð til leikmanna mfl. karla, kvenna eða annarra stjórnarmeðlima KKDK til að verða sér út um kort!