Fréttir

Körfubolti | 3. maí 2005

Ársþing KKÍ samþykkir að leyfa aðeins einn Kana á næsta tímabili

Nú er ársþingi KKÍ lokið og líkt og undanfarin þrjú ár voru gerðar breytingar á "Kanalöggjöfinni". Í þetta skiptið var ákveðið að hverfa aftur til þeirrar reglu að aðeins skuli einn Kani leyfður í hverju liði í úrvalsdeild. Samfara þessari breytingu var launaþakið lækkað til þess að hindra að í stað Kanans kæmu Evrópubúar. Megin rökin fyrir þessari breytingu voru þau að íslenskir leikmenn ættu að fá stærri hlutverk í keppni. Keflvíkingar voru reyndar fylgjandi 2ja Kana reglunni ásamt t.d. Snæfellingum, Borgnesingum og Tindstælingum. Meirihlutinn var þó greinilegur í þessu máli (atkvæðin féllu 56-28) og þar voru áberandi í málflutningi KR-ingar, Njarðvíkingar, Grindvíkingar, Þórsarar, Fjölnismenn og Haukar. Sum félög létu ekki uppi sínar skoðanir. En nú er þessari deilu lokið, amk í eitt ár, og gamla sýstemið ræður ríkjum. Ein önnur breyting er athyglisverð, en hún er sú að ef Kani fær íslenskan ríkisborgararétt meðan á leiktíðinni stendur skal hann leika áfram sem Kani til loka leiktíðar, þ.e. liðið getur ekki bætt við sig Kana fyrr en á næstu leiktíð.

Við Keflvíkingar sættum okkur vitanlega við lýðræðislega ákvörðun þingsins og reynum að stilla upp besta liði sem við getum, þó allt útlit sé fyrir að hætt verði við þátttöku í Evrópukeppninni. Þó ætlar stjórnin að íhuga þau mál gaumgæfilega á næstu vikum, en nú þegar er ljóst að ekki verður tekið þátt í Evrópukeppni nema stjórn og þjálfarar hafi á tilfinningunni að vera með lið í höndunum sem er a.m.k. í sama gæðaflokki og síðustu tvö ár, helst betra, til að geta gert einhverjar rósir og helst náð lengra en fyrr. Menn hafa engan áhuga á að senda lið til keppni sem á lítinn séns á því að komast lengra en áður, því engar vísbendingar eru um að önnur lið í Evrópu hafi hug á að veikjast. Hvað Íslandsmótið varðar eru Keflvíkingar í góðum málum, því flestir leikmenn hafa gefið jákvætt svar um áframhald, þó enn eigi eftir að binda síðustu hnútana. Eins hefur ekki verið gengið frá samningi við Sigurð þjálfara, en viðræður eru í gangi og vonast er til þess að þjálfaramálin verði kláruð í þessari viku. Meira um þessi mál síðar.

Annars var ársþingið hið ánægjulegasta og töluvert um málefnalegar umræður. Ísfirðingum fórst skipulag þingsins vel úr hendi og tengdu hátíðarkvöldverðinn við 40 ára afmæli félagsins. Þar var töluvert um viðurkenningar og heiðranir, m.a. fékk Guðjón Þorsteinsson gullmerki ÍSÍ og gullmerki KKÍ frá þeim Ellerti Schram og Ólafi Rafnssyni. Eins fékk Kári Marísson gullmerki KKÍ og Gísla Páli Pálssyni, formanni HSK, fyrrum stjórnarmanni og landsliðsnefndarmanni, ásamt Pétri Hólmsteinssyni úr ÍR voru afhent silfurmerki KKÍ. Þinggestir voru um 60 og fór vel á með þeim þrátt fyrir málefnalegan ágreining...