ATH. Breytt æfingatafla tekur gildi á mánudag
Æfingatafla Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur tekið breytingum og nýja töflu er hægt að nálgast hér eða á sínum stað á heimasíðunni
Breytt æfingatafla tekur gildi n.k. mánudag, 12. september.
Lista yfir þjálfara yngri flokka má nálgast á heimasíðunni undir hlekknum; "Þjálfarar yngri flokka" og verða þeir nánar kynntir til sögunnar á komandi vikum.
Skráningar eru með nýjum hætti hjá félaginu og nú skrá allir forráðamenn sín börn sjálfir rafrænt á slóðinni https://keflavik.felog.is/ (einnig hlekkur á forsíðu) og ganga jafnframt frá greiðslum á sama stað. ATH. að einungis er hægt að greiða með kreditkorti við rafræna skráningu. Ef einhverjir foreldrar þurfa nauðsynlega að nota annan greiðslumáta verða viðkomandi að senda Sveini Björnssyni, gjalkera Barna- og unglingaráðs, tölvupóst á sveinn@hnh.is - ATH. að lokað verður fyrir rafræna skráningu 15. september.
Leiðbeiningar varðandi rafræna skráningu má nálgast hér
Afsláttur til systkina er 50% fyrir öll yngri systkini elsta iðkandans.
Barna- og unglingaráð KKDK