Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 17. nóvember 2009

ATH. Mikið breytt æfingatafla Körfuknattleiksdeildar

Vegna framkvæmda sem hafnar eru við Akademíuna tekur æfingatafla körfuknattleiksdeildar umtalsverðum breytingum frá og með deginum í dag.  Þó að þessar breytingar hafi legið í loftinu um hríð höfum við aldrei fengið neinar fastar dagsetningar á þessar framkvæmdir fyrr en með símtali í gær þar sem okkur var tilkynnt að framkvæmdir hæfust á morgun þó þær hafi í raun hafist samdægurs.  Við viljum biðja iðkendur, foreldra og aðra hlutaðeigandi að sýna því skilning að nú breytast flestir æfingatímar og staðsetningar þannig að flestir þurfa að skipuleggja heimlisdagatalið á nýjan leik.  Í einhverjum tilfellum þurfum við að fækka æfingum og einnig er hætt við því að einhverjir æfingatímar falli foreldrum ekki í geð.  Við fáum þó illa ráðið við þetta umrót þar sem við fáum skipanir um þetta frá bæjaryfirvöldum og þrátt fyrir að tekist hafi að fá nokkra viðbótartíma í Myllubakka og Heiðarskóla er fyrirsjáanleg fækkun og þjöppun á tímum. 

Athugið að taflan gildir til áramóta til að byrja með þó líklega verði um einhverjar breytingar að ræða á næstu dögum. Þegar fimleikadeildin flyst síðan yfir í Akademíuna verður taflan smíðuð á nýjan leik og þá flyst hluti tímanna í B-sal við Sunnubraut.

Iðkendur eru beðnir að fylgjast vel með öllum breytingum á bloggsíðum sinna flokka á næstu dögum en einnig verður æfingataflan á heimasíðunni uppfærð eins reglulega og kostur er.

Með von um þolinmæði og skilning.

Unglingaráð KKDK