Atli Freyr, Cole og Kristrún tryggðu sér bíómiða í SamBíó
Á morgunæfingu körfuknattleiksdeildarinnar í dag var sett upp skotkeppni Keflavíkur og SamBíó. Hver keppandi tók 150 skot, með og án knattraks, og var um hörkukeppni að ræða. Lyktir urðu þær að Atli Freyr Ásbjörnsson bar sigur úr býtum með 117 stig, í öðru sati varð Jarryd Cole með 114 stig og Kristrún Björgvinsdóttir kom skammt þar á eftir í þriðja sæti með 112 stig.
Að sjálfsögðu gáfu þrjú efstu sætin bíómiða í SamBíóin og myndatöku sigurvegurunum til heiðurs. Miklir morgunhanar greinilega þarna á ferðinni