Í gærkvöldi var skemmti- og styrktarkvöld körfunnar í Keflavík í Stapa. Mikið var af góðum skemmtiatriðum, t.d. fluttu félagarnir í Breiðbandinu nokkur skemmtileg lög og Dísa Edward sýndi að hún er efnileg söngkona. Margir góðir happdrættisvinningar fóru til gestanna og einnig voru gestum sýnd tískuföt frá K-Sport, Kóda og Persónu. Veislustjórninn Svali Björgvinsson forfallaðist, en formaður deildarinnar hljóp í skarðið. En senuþjófurinn var Auddi úr PoppTíví. Hann byrjaði með Michael Jackson show en sagði svo góðan sögur af sjálfum sér og öðrum. Topp grínisti, pilturinn. Matur var afar ljúffengur, mexíkóst hlaðborð frá Stapanum. Að skemmtikvöldinu loknu lék Á móti sól fyrir dansi.