Fréttir

Körfubolti | 7. desember 2003

Auðveldur 26 stiga sigur í Þorlákshöfn, 72-98

Það var ekki fullskipað lið Þórsara sem mætti okkar mönnum í kvöld í fyrstu heimsókn Keflvíkinga til Þorlákshafnar í efstu deild. Þeir félagar Gunnlaugur Erlendsson og Sævar Birgisson voru fjarverandi og sömuleiðis þjálfarinn Bill Dreher. Að sama skapi vantaði þrjá fastamenn í Keflavíkurliðið, Hjörtur er meiddur og síðan hvíldu þeir Falur og Jonni. En Íslandsmeistararnir hafa mun meiri breidd en nýliðarnir og kom það í ljós þegar á upphafsmínútunum.

Gunnar Einarsson var heitur í þessum leik og gaf tóninn með því að skella niður tveimur þristum í upphafi leiks. Það byggðist strax upp forysta og að loknum fyrsta leikhluta var staðan 17-31. Keflavík lék pressuvörn mest allan leikinn og orsakaði mikil vandræði með henni, þótt bakvörðurinn Magnús Sigurðsson sé örugur með knöttinn. En vörnin var heldur ekki eins stíf og hún getur verið, til þess var munurinn á liðunum of mikill. Keflvíkingar þurftu ekki að vera í botni til að sigra og gátu leyft sér ýmislegt.

Í háfleik var staðan 39-51, en í lok þriðja og í upphafi fjórða leikhluta gáfu Keflvíkingar aðeins í og juku forystuna sem fór upp fyrir 30 stigin en endaði í 26 stigum, 72-98. Gunnar lék vel, skoraði 19 stig og hitti úr 5 af 7 3ja stiga tilraunum. Nick var ágætur, setti 17 stig og hirti 9 fráköst. Arnar Freyr átti góðan leik, skoraði 12 stig, stal 6 boltum, gaf 5 stoðsendingar og hirti 5 fráköst á 18 mínútum. Derrick Allen var með allra rólegasta móti, gerði aðeins 5 stig. Annars verður liðið ekki dæmt af þessum leik. Liðið heldur aftur til Þorlákshafnar eftir viku og mun þá keppa í Bikarnum. Eflaust verður mótspyrnan meiri þá, ef Þórsarar hafa endurheimt þá menn sem vantaði í dag.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

En nú er komið að stórleik! Á miðvikudaginn koma Frakkarnir og því þurfa allir að fara að koma sér í gírinn!!