Auðveldur heimasigur gegn Breiðabliki í gær
Ekki voru Keflvíkskir áhorfendur sérlega ánægðir með byrjun leiksins í gær því leikmenn heimaliðsins voru á hælunum í upphafi og sýndu fullmikla gestrisni. Blikarnir fengu að athafna sig að vild, ekki síst Kenneth Tate, "Kaninn með hárið", og náðu þeir fljótlega 13 stiga forskoti, 26-13. Þá vöknuðu okkar menn af værum blundi og jöfnuðu í hvelli án þess að Blikar fengu rönd við reist.
Eftir það var leikurinn eign heimamanna sem þó náðu ekki að slíta sig lausa frá Blikum fyrr en vel var liðið á seinni hálfleik. Sex stiga munur var í hálfleik en fljótlega eftir hlé var ljóst í hvað stefndi. Vörnin varð aggressívari og sóknarleikurinn hraðari. Þannig kunna Keflvíkingar best við sig og sigldu heim 27 stiga sigri, 117-90.
Blikarnir virkuðu hálf andlausir og virtust í raun aldrei hafa trú á sigri þrátt fyrir góða byrjun. Keflavíkurliðið var án Jóns Hafsteinssonar og var því frekar lágvaxið stóran hluta leiksins, en það kom ekki að sök. Bakverðirnir héldu uppi góðum hraða og það var meira en Breiðablik réð við.
Alls skoruðu sjö leikmenn 10 stig eða meira og mest skoraði nýji Íslendingurinn, Damon, alls 30. Hann náði auk þess "þrefaldri tvennu" með 10 fráköstum og 10 stoðsendingum. Einnig fór Sverrir Þór langleiðina í þrefalda tvennu með 10 stigum, 8 fráköstum og 7 stolnum boltum. Davíð Jónsson kom inn í byrjunarliðið og átti ágæta spretti og eins var Arnar Freyr Jónsson í liðinu í fyrsta sinn og vakti hann athygli fyrir góða baráttu og áræðni.
Þessi leikur var ekki mikið meira en létt æfing, en á sunnudaginn bíður alvöru verkefni þegar Haukarnir koma í heimsókn í Bikarkeppninni. Bikarleikir eru ávallt skemmtilegir, því þar gildir að duga eða drepast og vonumst við eftir fleiri áhorfendum þá en í kvöld, en þeir voru með fæsta móti.