Auðveldur heimasigur Keflavíkurstúlkna gegn Njarðvík
Sonia stal 16 boltum!
Eins og menn áttu kannski von á reyndust Njarðvíkurstúlkur ekki mikil fyrirstaða fyrir Keflavík í leik félaganna í 1. deild kvenna í gær. Munurinn byggðist upp hægt og örugglega og í hálfleik var munurinn 16 stig, 38-22.
Í seinni hálfleik voru gestirnir kafsigldir með grimmum varnarleik þar sem Sonia fór fremst í flokki. Stúlkan sú “stal” alls 16 boltum í leiknum, en það hlýtur að vera einhvers konar met. Leikurinn endaði síðan með 40 stiga mun, 82-42.
Eins og í undanförnum leikjum fengu allar stúlkurnar að spreyta sig og allar náðu þær að skora. Næsti leikur í deildinni er á Ásvöllum laugardaginn 7. des. gegn Haukum sem hafa komið á óvart með ungu liði sínu og unnu t.d. KR í gær með 12 stigum.
Nú hafa Keflavíkurstúlkur 8 stiga forystu í deildinni eftir aðeins 8 leiki (reyndar eiga Haukar og Grindavík einn leik til góða). Alls eru sigurleikirnir orðnir 10 í röð í deild og Kjörís. Gaman verður að sjá hversu langt liðið kemst ósigrað.