Fréttir

Karfa: Konur | 16. desember 2010

Auðveldur sigur á Fjölnisstúlkum

Keflavíkurstúlkur lönduðu auðveldum sigri í kvöld þegar Fjölnisstúlkur mættu í heimsókn. Leikurinn varð aldrei spennandi og voru Fjölnisstúlkur vængbrotnar án Natöshu Harris, en hún er meidd á hendi. Lokatölur leiksins voru 79-39 og tryggja því Keflavíkurstúlkur sér sæti í A-riðlinum þegar deildinni verður skipt upp.

Stig kvöldsins:

Keflavík: Jacquline Adamshick 22/11 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 14/5 stolnir, Pálína Gunnlaugsdóttir 13/4 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 9/11 fráköst, Hrund Jóhannsdóttir 7/4 fráköst/3 varin skot, Marín Rós Karlsdóttir 5/5 stoðsendingar, Rannveig Randversdóttir 4, Sigrún Albertsdóttir 3/4 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 2, Ingibjörg Jakobsdóttir 0, Árný Sif Gestsdóttir 0, Aníta Eva Viðarsdóttir 0.

 

Fjölnir: Inga Buzoka 9/16 fráköst/7 stoðsendingar, Birna Eiríksdóttir 8, Erla Sif Kristinsdóttir 7/8 fráköst, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 6, Bergþóra Holton Tómasdóttir 6/5 fráköst, Erna María Sveinsdóttir 2, Eva María Emilsdóttir 1, Sigrún Gabríela Jóhannsdóttir 0, Dagbjört Helga Eiríksdóttir 0, Margrét Loftsdóttir 0.