Fréttir

Körfubolti | 16. febrúar 2004

Auðveldur sigur á ÍR í kvöld, 91-36 - Spennandi lokabarátta framundan í 1. deild kvenna

Eftir að ÍR missti Kanan sinn fyrir skömmu er fátt um fína drætti hjá Breiðholtsdömum. Þær tapa leikjunum núna frekar stórt og geta ekki veitt hinum liðunum verðuga mótspyrnu. Í kvöld fóru nýkrýndir Bikarmeistarar Keflavíkur í Seljaskólann og áttu í engum erfiðleikum með heimamenn. Í hálfleik var staðan 18-42 fyrir Keflavík og lokastaðan var 36-91, 55 stiga munur.

Erla Þorsteins átti góðan dag enda engin sem gat truflað hana undir körfunum, hún skoraði 15 stig og hirti 18 fráköst. Annars dreifðist spilatíminn og stigaskorið jafnt.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Nú eru eftir þrjár umferðir í 1. deild kvenna og baráttan um deildarmeistaratitilinn er hörð. Keflavík hefur 28 stig og ÍS 24 eftir öruggan sigur í KR í kvöld. Eins og við mátti búast treystu ÍS-ingar sér ekki í hreinræktaðan Íslendingaslag gegn Keflavík og náðu sér í Kana, Casie Lowman, sem virðist öflugur leikmaður.

Leikjaprógrammið sem eftir er hjá toppliðunum er svona:

Keflavík

  • KR heima
  • ÍS úti
  • Njarðvík heima

ÍS

  • Grindavík úti
  • Keflavík heima
  • ÍR úti

Einu úrslitin sem fyrirfram má telja "örugg" er sigur ÍS á ÍR, en aðrir leikir gætu orðið spennandi, ekki síst þar sem Grindavík og Njarðvík heyja grimma baráttu um fjórða og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. ÍS getur að hámarki náð 30 stigum, þannig að Keflavík dugir að vinna tvo af síðustu þremur leikjunum til að vinna deildina, en einnig dugir að vinna ÍS. Spennandi tíð framundan og góður undirbúningur fyrir úrslitakeppnina sem hefst um miðjan mars.