Fréttir

Karfa: Karlar | 4. september 2008

Auðveldur sigur á Njarðvík og úrslitaleikur gegn Grindavík á morgun

Keflavík sigraði í kvöld Njarðvík í æfingamótinu í Toyotahöllinni.  Í lið Keflavíkur vantaði Sigga, Þröst og Sverrir Þór en gestina vantaði Frikka og Magga.  Keflavíkingar tóku fljótt öll völd á vellinum með Gunnar sjóðheitann. Gunnar var komin með 27.stig í hálfleik og Steven nýji leikmaður okkar 13. stig. Keflavik sigraði svo leikinn 98-60 og mætir Grindavík í úrslitaleik á morgun.

Stigahæstir hjá Keflavík voru Gunnar 36.stig, Steven 20. stig og Almar með 10. stig

Hjá Njarðvík var Friðrik Óskarsson með 12 stig og Sigurbjörn með 10 stig.

Tölfræði leiksins í pdf