Auðveldur sigur gegn daufum KR-ingum
Það tók ekki langan tíma fyrir Keflavíkurpilta að hrista slaka KR-inga af sér í daufum leik í gærkvöldi. Eftir fyrri hálfleikinn var kominn 19 stiga munur, 54-35, og seinni hálfleikurinn var nánast formsatriði. Í lokin var munurinn 23 stig og lokastaðan var 103-80 fyrir heimamenn. Allir leikmenn Keflavíkur fengu mikið að spila og náðu allir að skora í þetta skiptið.
Ekki var að sjá á KR-ingum að þeir hefðu mikla trú á eigin getu, því byrjun leiksins gaf strax til kynna hvernig færi. Keflvíkingar voru mun baráttuglaðari og ætluðu ekki að láta henda sig aftur að mæta sofandi til leiks líkt og í Grindavík um daginn. Enda hirtu Keflvíkingar 56 fráköst í leiknum á móti 28 hjá KR-ingum, en það gefur ágætis mynd af því hvoru meginn viljinn var. Derrick hirt 13 af þessum fráköstum og þeir Jonni og Nick 9 hvor. Eins var Sverrir Þór grimmur og náði í 8 fráköst í leiknum, auk þess sem hann gerði 8 stig og átti 6 stoðsendingar.
Arnar Freyr kom inn í liðið á ný eftir höfuðmeiðsli og var sprækur, náði t.d. í nokkur vítaskot með keyrslum sínum inn í vörnina og gerði 8 stig á þeim 11 mínútum sem hann lék. Annars var Derrick atkvæðamestur, eins og svo oft áður og gerði 30 stig. Sá drengur hefur aðeins einn gír, ef svo má segja, en það er "í botni". Sérlega gaman að sjá til hans á velli. Nick átti ágætan dag og setti 20 stig, samt tapaði hann of mörgum boltum í leiknum, alls 7. Falur hélt uppteknum hætti og hitti vel úr langskotum sínum, hann setti 4 oní úr 9 tilraunum og skoraði 14 stig í leiknum.
Falur þjálfari var nokkuð sáttur með sína menn að leik loknum og sagði að sigurinn hafði verið frekar fyrirhafnalítill í þetta skiptið, enda hefðu menn komið tilbúnir í slaginn.
KR-liðið er ágætlega mannað en liðsheildin er ekki sannfærandi, hvorki er hægt að merkja leikskipulag eða baráttu hjá liðinu. Útlendingarnir þeirra, Chris Woods og Jesper Sörensen voru bestir með 19 og 13 stig, þótt Woods hafi þurft margar tilraunir, enda í ágætri gæslu mest allan leikinn.
Með þessum sigri náði Keflavík að hífa sig upp í 3ja sætið í deildinni með 12 stig, líkt og Snæfell. Njarðvík hefur 14, en á toppnum trónir Grindavík taplaust sem fyrr með 18 stig. Næsti leikur er á morgun, sunnudag, gegn Þór í Þorlákslhöfn. Það verður í fyrsta sinn sem Keflavík leikur í Þorlákshöfn í efstu deild og er mikilvægt að ná 2 stigum úr þeirri viðureign. Þórsarar voru sprækir í upphafi en hafa dalað verulega. Þeir hafa þó örugglega hug á að endurheimta fyrri styrk og munu selja sig dýrt gegn Íslandsmeisturunum. Svo skemmtilega vill til að Keflavík mun viku síðar aftur heimsækja Þórsara, næsta sunnudag, í Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar.